Skoðanakönnun frá maí - júní

Sigurbjörn Hreiðarsson hefur verið atkvæðamikill með Val að...Ég gerði skoðanakönnun á blogginu í maí og júní um hvaða þjálfari fengi fyrstur að fjúka úr starfi. Svindlað var á skoðanakönnuninni því síðasta daginn komu skyndilega 40 atkvæði og öll á Ásmund Arnarson þjálfara Fjölnis. En augljós sigurvegari könnunarinnar var Logi Ólafsson KR,  í 2. sæti varð Leifur Garðarsson Fylki og í 3. sæti Willum Þór Þórsson, Val.

Samkvæmt könnuninni eru Heimir Guðjónsson, Guðjón Þórðarsson og Kristján Guðmundsson ÍBK, öruggastir í starfi.

Valur þarf þjálfara eins og Yuri Illitsev hinn sovétska, sem réði málum á Hlíðarenda um og fyrir 1980. Skoðanakönnunin fór annars svona: (Ath. að Ásmundur á einungis að vera með örfá atkvæði)

Hvaða þjálfari í efstu deild fær fyrstur að fjúka?
Ólafur Kristjánsson, Breiðablik 6.2%
Heimir Guðjónsson, FH 0.8%
Ásmundur Arnarsson, Fjölni 17.8%
Þorvaldur Örlygsson, Fram 2.3%
Leifur Garðarsson, Fylki 18.6% (3)
Milan Stefán Jankovic, Grindavík 6.6%
Gunnar Guðmundsson, HK 5.4% (1)
Guðjón Þórðarson, ÍA 1.2% (2)
Kristján Guðmundsson, ÍBK 0.8%
Logi Ólafsson, KR 29.5%
Willum Þór Þórsson, Val 7.8%
Gunnar Oddsson, Þrótti 3.1%
258 hafa svarað
Rauðir eru þeir sem þegar eru farnir, röð innan sviga.

mbl.is Skagamenn með útisigur á Val
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég á erfitt með að vera hlutlaus varðandi þennan leik. Dáði Skagamenn sem strákur og gerði textann "Skagamenn skoruðu mörkin" en var í Kaldárseli í þrjú heil sumur og séra Friðrik stofnaði Val.

Margir af bestu vinum mínum eru Valsmenn en einnig Skagamenn. En ég var skráður félagi í Fram þremur mánuðum fyrir fæðingu og þess vegna verður Framarinn sterkastur í mér og fram hjá því verður ekki komist að Fram græðir á því í baráttunni um þriðja sætið ef næstu lið tapa.  

Ómar Ragnarsson, 31.8.2008 kl. 23:35

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta Ómar. Ég varð Valsari um leið og ég flutti á Lindargötuna árið 1969, frá Stykkishólmi, en þar ég bjó ég í 2 ár, þau fyrstu í grunnskólagöngu minni, utan nokkurra mánaða forskóla í Miðbæjarskólanum árið 1966. Í 1. og 2. bekk í Grunnskóla Stykkishólms, var Jón Páll nokkur Sigmarsson bekkjarfélagi minn, en ég veit að ykkur varð vel til vina.

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.8.2008 kl. 23:42

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég á sem sagt 40 ára Vals-afmæli á næsta ári!!

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.8.2008 kl. 23:45

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og nú er orðið endanlega ljóst held ég, að Valsmenn verja ekki titilinn!

Magnús Geir Guðmundsson, 1.9.2008 kl. 01:41

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

það er næsta víst

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.9.2008 kl. 06:13

6 identicon

Ekki ÍBK, heldur Keflavík.

Gestur Páll Reynisson (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 20:47

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

ÍBK er ágæt stytting á keflinu  gömul og góð

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.9.2008 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband