Hangir eins og hundur á roði

Ólafur Ragnar Grímsson o.fl. gamlir Allaballar og margir V-grænir nú,  og áður, um miðja síðustu öld, kommúnistar og sósíalistar, höfðu alltaf tilhneigingu til þess að gera meira úr andstöðu almennings á Íslandi gegn inngöngu í Atlandshafsbandalagið en efni stóðu til. Vissulega var harður kjarni Kommúnista heiftarlega á móti Nato og herliðinu hér, eins og átökin á Austurvelli sýndu árið 1949. Þá var andstaðan sennilega mest, enda plötuðu vinstrimenn almenning til fylgilags við sig með bulli og lygum, eins og síðar átti eftir að koma í ljós.

 Keflavíkurgöngurnar voru nokkuð fjölmennar í nokkur skipti á 8. áratugnum og tók ég m.a.s. þátt í einni, mig minnir að það hafi verið 1976. En göngufólki fækkaði hratt á næstu árum og voru oft á tíðum örfáir tugir en Þjóðviljinn þreyttist ekki á að falsa upplýsingar til almennings um góða þáttöku. Að lokum lagðist mótmælagangan af þó reynt væri að endurvekja hana í nokkur skipti með slælegum árangri.

Ég man þá tíð þegar andstæðingar Nato lögðu gríðarlega áherslu á að lokað yrði fyrir útsendingar Kana-sjónvarpsins á Keflavíkurflugvelli til almennings á Suð-Vesturhorninu. Íslenskri menningu og tungu og sjálfstæði þjóðarinnar var ógnað að mati Alþýðubandalgsmanna ( V-grænna ), svo ekki sé minnst á þann skelfilega kapitaliska fréttaáróður sem frá þeim átti að koma. Um þetta urðu nokkuð hatrammar deilur en Allaballar fengu sitt í gegn og eru væntanlega stoltir af því í dag.

Öfga - umhverfisverndarsinnar sem flestir virðast koma úr röðum kreddufullra vinstrimanna, beita nákvæmlega sömu áróðurstækni. Á ákveðnum tímapunkti, þegar þeim hafði tekist að ljúga að almenningi allskonar staðreyndavitleysum í aðdraganda Kárahnjúkavirkjunnar, sýndu skoðanakannanir að um 70% þjóðarinnar var andsnúin fyrirhuguðum framkvæmdum. Svo þegar skrautfjaðrirnar í málflutningi forsvarsmanna andstöðunnar tóku að reytast af smátt og smátt, þá fækkaði stuðningsmönnunum og að lokum var meirihluti þjóðarinnar hlyntur framkvæmdunum og Alþingi samþykkti með öllum atkvæðum nema V-grænna auk tveggja annarra þingmanna.

Enn í dag hanga V-grænir og forkólfar umhverfisverndarbaráttunnar, eins og hundar á roði á gömlum skoðanakönnunum og tala um að allar framkvæmdir séu í andstöðu við meirihluta þjóðarinnar. Því miður getur málflutningur svona öfgahópa skaðað umhverfisvernd þegar til lengri tíma er litið. Við skulum þó vona að svo verði ekki.

Soviet_takeover

 

 


mbl.is Einkennilega að orði komist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband