Tilbúnir til viðræðna ef.....

Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti segir Íran skara fram úr... .... Íran fær að halda áfram óáreittir í áformum sínum um kjarnorkuvæðingu.

Já, það verða væntanlegar skrítnar "viðræður". Þetta minnir mig svolítið á umhverfissinna sem ekki eru til "viðræðna" nema allt sé eins og þeir vilja. Lára Hanna umhverfisbloggari orðar aðferðarfræði hryllingsstjórnarinnar í Íran ágætlega og yfirfærir á áhugamál sitt:

"Hinn þreytti frasi virkjana- og álverssinna um að virkjað sé "í sátt við náttúruna" er alveg einstaklega kaldhæðnislegur. Þeim finnst allt í lagi að stúta náttúrunni og virkja bæði jarðhita og fallvötn - af því það er svo mikið "í sátt við náttúruna". Náttúran er semsagt mjög sátt við að láta leggja sig í rúst".

Það er augljóst að sumir náttúruverndarsinnar eru alveg til í viðræður, svo framarlega sem allt er gert eins og þeir vilja.


mbl.is Íranir reiðubúnir til viðræðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Á hinn bóginn má alveg spyrja hvers vegna vesturveldin eru tilbúin að slaka á viðskiptahindrunum sem þau settu sjálf á, svo framarlega sem Íranar séu tilbúnir til að hætta öllum kjarnorkuáformum, sama hvað þau heita.  Sjaldan veldur einn er tveir deila, nema deilt sé með tveimur...

Sigurjón, 4.8.2008 kl. 02:12

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þetta minnir pínulítið á Guðna Framsóknarprinsessu. Það má enginn segja skrítlur nema hann. Sem er líka pínulítið slæmt því skrítlurnar hans eru bæði úldnar og ófyndnar.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 4.8.2008 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband