Presturinn leyfði ekki skilnaði

 Fyrir nokkrum árum var viðtal í einhverju blaði við Davíð Baldursson sóknarprest á Eskifirði, en hann þjónar Reyðarfirði einnig. Davíð, sem er mikill húmoristi var spurður hvernig á því stæði að svona lítið væri um hjónaskilnaði í funnyprestakallinu. Davíð svaraði: " Það er af því ég leyfi ekki hjónaskilnaði hér!" Grin

Lára Hanna Einarsdóttir náttúruverndarbloggari leitar logandi ljósi að dæmum um hve mislukkaðar virkjunar og álversframkvæmdirnar á Austurlandi eru.  Hildur Helga  svaraði ákalli Láru við að tína til dæmi í athugasemdardálki hennar:

"Sá þig auglýsa á amk einum stað eftir fleiri dæmum um það, sem ekki hefur gengið eftir í kjölfar virkjana í fyrirheitna landinu á Austfjörðum. Nógu mörg slík dæmi hafa nú bæði þú og aðrir talið upp, en ég bendi samt á nýlega frétt um stóraukna tíðni hjónaskilnaða fyrir austan. (Sjónvarp; RÚV eða Stöð 2)."

Þetta þótti Láru Hönnu kærkomin viðbót við önnur dæmi sem hún þóttist hafa fundið. Ég velti því óneitanlega fyrir mér hvort það geti verið mjög margir sem kokgleypa bullið í þessum nýja fánabera náttúruverndarbaráttunnar. Miðað við það sem maður les í athugasemdardálkum hennar, eru það a.m.k. einhverjir sem það gera.

 

 


mbl.is Skilnaðarbylgja að hausti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

cow Uxar við ána... - dream on, silly cow!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 8.7.2008 kl. 03:28

2 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

´  

"......náttúruverndarbloggari leitar logandi ljósi að dæmum um hve mislukkaðar virkjunar og álversframkvæmdirnar á Austurlandi eru.

Dæmi: Fjallagrasatínsla hefur nánast lagst af og ullarpeysuprjónaskapur þekkist varla lengur.  Fólk hefur nú svo mikið að gera við að vinna og græða peninga að það þarf ekki lengur að tína grös né prjóna lengur. Þessi græðgisvæðing er allt virkjununum að kenna.

Álíka dæmi frá Búlgaríu um græðgisvæðingu: Eftir að Búlgaría gekk í Efnhagsbandalag Evrópu hafa þeir það svo gott, að þeir nenna ekki lengur að vakna fyrir allar aldir á rigningamorgnum til að tína garðsnigla, svo það litla sem fæst af sniglunum er orðið svo dýrt, að núna þurfa Frakkar að fara að leggja sér eitthvað annað til munns.  Helvítis græðgisvæðingin - Lára Hanna!

Kær kveðja

Björn bóndi.

´

Sigurbjörn Friðriksson, 8.7.2008 kl. 14:33

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

 Góður Sigurbjörn!

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.7.2008 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband