Oft næstum rekinn

Spánarkonungur, Juan Carlos, fagnaði sigri Spánverja með... Íslendingar voru í riðli með Evrópumeisturum Spánverja í undankeppni EM og gerðu jafntefli heima og töpuðu naumlega á Spáni 1-0, er Spánverjar skoruðu á lokamínútu leiksins. Svo virðist sem Spánverjar henti Íslendingum ágætlega því úrslitin hafa oft verið með ágætum fyrir okkur, miðað við hve mikil knattspyrnuþjóð þeir eru.

Luis Aragonés hefur verið umdeildur sem þjálfari Spánar og háværar raddir hafa heyrst reglulega um að reka ætti þann gamla. Þær raddir eru auðvitað þagnaðar í dag. Alex Ferguson lenti í svipuðu þega Man Utd. mistókst að verða Englandsmeistari nokkur ár í röð eftir blómatíma. Að reka þjálfarann, ef ekki næst toppárangur, ber stundum vott um taugaveiklun og örvæntingu og oftar en ekki tóm vitleysa en á auðvitað stundum rétt á sér.

Leikir Íslands gegn Spáni frá upphafi:

 31.05.6700:00A karla - ÓL 1968LaugardalsvöllurÍslandSpánn (áhug.)1-1Skoða leikskýrslu

22.06.6700:00A karla - ÓL 1968 Spánn (áhug.)Ísland5-3

27.10.8200:00A karla - EM 1984 SpánnÍsland1-0Skoða leikskýrslu

29.05.8300:00A karla - EM 1984LaugardalsvöllurÍslandSpánn0-1Skoða leikskýrslu

25.09.8500:00A karla - HM 1986 SpánnÍsland2-1Skoða leikskýrslu

12.06.8500:00A karla - HM 1986LaugardalsvöllurÍslandSpánn1-2Skoða leikskýrslu

10.10.9000:00A karla - EM 1992 SpánnÍsland2-1Skoða leikskýrslu

25.09.9100:00A karla - EM 1992LaugardalsvöllurÍslandSpánn2-0Skoða leikskýrslu

15.08.0620:00A karla - VL 2006LaugardalsvöllurÍslandSpánn0-0Skoða leikskýrslu

28.03.0720:00A karla - EM 2008Leikið erlendisSpánnÍsland1-0Skoða leikskýrslu

15.08.0620:00A karla - VL 2006LaugardalsvöllurÍslandSpánn0-0Skoða leikskýrslu

08.09.0720:00A karla - EM 2008LaugardalsvöllurÍslandSpánn1-1Skoða leikskýrslu

Árangur Spánverja í hópíþróttum hin allra síðustu ár er athyglisverður. Það hefur lengi loðað við þá að vera ekki nógu þjóðernissinnaðir sem liðsheild vegna rígs milli þjóðarbrota og héraða innan landsins. Nú virðist það að baki ef marka má nýlega heimsmeistaratitla í handbolta og körfubolta og nú Evrópumeistaratitils í fótbolta.

 

 


mbl.is Aragonés hættir sem meistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband