Ekkert varið í hann lengur

michelangelo_david2Við útskriftarnemarnir í Garðyrkjuskólanum í Hveragerði fórum til Þýskalands og Ítalíu í apríl 1988. Fyrst vorum við í Freiburg í S-Þýskalandi í nokkra daga og svo tókum við lest til Flórens. Flórens er stórkostlegur staður að koma til og andi menningarinnar frá dögum Medicci ættarinnar svífur þar yfir vötnum. Michel Angelo er auðvitað frægasta nafnið sem kemur upp í hugann enda er hann höfundur frægustu listaverka veraldarinnar. Aldrei hefur höggmynd haft eins mikil áhrif á mig og "Davíð". Ég stóð fyrir framan þessa ca. fjögurra metra háu marmarastyttu orðlaus af undrun. Ljósmynd segir ekki þúsund orð, þegar Davíð er annars vegar. Maður verður að sjá hana "Live".

Við skruppum með lest yfir til Pisa til þess að skoða skakka turninn.

pisa

Mig minnir að árið sem við vorum þarna hafi verið síðasta árið sem hann var opinn almenningi, svona skakkur. Aðgangur almennings að honum var bannaður af öryggisástæðum í þó nokkuð mörg ár og ég glennti alltaf upp augun þegar ég sá fréttir af gangi mála við að stöðva hallann.

Mér er mjög minnistætt þegar við skólasystkinin gengum upp spíral-laga steintröppurnar inni í turninum.... helv. mörg þrep og á toppi turnsins fékk maður sterklega á tilfinninguna að turninn væri alveg að falla. Og mig grunaði þegar ég kíkti út af járnhandriðinu, sem manni fannst reyndar vera skelfilega veigalítil, að þungi minn væri einmitt kílóin sem vantaði í viðbót, svo hann félli. Ég hefði ekki viljað missa af honum svona skökkum.

Hvað er varið í "skakka" turninn, standandi beint upp í loftið?


mbl.is Þráðbeini turninn í Písa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Hvað er varið í "skakka" turninn, standandi beint upp í loftið?

Well, I could think of a thing or two...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 29.5.2008 kl. 20:34

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.5.2008 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband