Ég vil byrja á því að óska þeim sem hafa verið á móti þessum framkvæmdum til hamingju með álitið. Ég hafði hugsað mér að samþykkja álitið möglunarlaust, en eftir því sem ég kynni mér álit fleiri faglegra aðila um málið, því meira efins verð ég. Ég bjóst nefnilega við að álitið snérist fyrst og fremst um þann hræðsluáróður sem virkjunarandstæðingarnir hömruðu mest á, þ.e. að eiturgufurnar frá borholunum væru hættulegar heilsu Hvergerðinga og raunar fólki á höfuðborgarsvæðinu líka og að svæðið fyrir neðan virkjunina í Reykjadal og giljunum þar ofan við, myndu eyðileggjast og þar með væri ferðamennska á svæðinu varpað fyrir róða.
En mótmælendur fullyrtu það nú samt. Einnig hef ég séð þá mótmæla raski á fornleifum á svæðinu. Fornleifavernd ríkisins leggst ekki gegn framkvæmdinni, einfaldlega vegna þess að fornleifar eru lítilfjörlegar á svæðinu.
Iðnaðarráðuneytinu barst bréf Skipulagsstofnunar til umsagnar 24. sept. sl. Niðurlag umsagnar ráðuneytisins 19. okt sl. er:
"Hengilssvæðið er ekki meðal þeirra svæða sem tilgreind eru sem sérstaklega mikilvæg út frá verndunarsjónarmiðum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ráðuneytið gerir ekki frekari athugasemdir við frummatsskýrslu um fyrirhugaða 135 MW jarðhitavirkjun, Bitruvirkjun".
Virkjunarandstæðingar hömruðu á að háspennulínur eyðilegðu ásýnd svæðisins. Áætlun um raflínur var breytt og fyrirhugað var að leggja þær í jörð.
Í bréfi Orkustofnunar til Skipulagsstofnunar 9. nóv. s.l. um mat á umhverfisáhrifum Bitruvirkjunar og Hverahlíðarvirkjunar segir m.a.
"Orkustofnun telur þá stefnumörkun um umhverfis og ásýndarmál fyrir hönun jarðvarmavirkjana á Bitru og við Hverahlíð sem lýst er í matsskýrslunum vera til fyrirmyndar".
Umhverfisstofnun segir í bréfi til Skipulagsstofnunar 2. nóv. sl.
"Það er mat Umhverfisstofnunar, að teknu tilliti til ofangreindra atriða og að við þeim verði brugðist með fullnægjandi mótvægisaðgerðum, sé ekki líklegt að heildaráhrif vegna framkvæmdanna verði umtalsverð".
Margir aðrir aðilar eru með jákvæða umsagnir um Bitru og Hverahlíðarvirkjun með fyrirvörum um frekari rannsóknir á óvissuþáttum, s.s. brennisteinsvetnismengun, hljóðmengun, nýtingu á "jarðhitageyminum" undir svæðinu o.þ.h.
Fjöldi athugasemda einstaklinga sem margar hverjar voru "Copy/paste" eftir uppskrift forystsauða mótmælendanna er ómerkilegt innlegg í faglega umræðu um þessi mál. Þær ættu því einfaldlega að reiknast sem undirskriftalisti um mótmæli við Bitruvirkjun og ekkert annað.
Getur verið að Skipulagsstofnun láti ýkjuáróður umhverfisverndarsinna hafa áhrif á sig?
Maður spyr sig.
![]() |
Bitruvirkjun út af borðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: stóriðja og virkjanir | 19.5.2008 (breytt kl. 18:40) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 946767
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Femínistar og jafnaðarmenn mega vel við una þrátt fyrir allt, bakslögin eru ennþá lítil miðað við sigrana í þessum málum
- Fyrirhyggjuleysi barnalegra yfirvalda á Íslandi
- Hryðjuverk mega aðeins réttir aðilar fremja !
- 3244 - Raf-Eitthvað
- Hverju öðru var logið að okkur?
- Talað tungum tveim
- Fríríkið Vestmannaeyjar
- Er ríkisstjórn K. Frost. frá sólhvörfum 2024 útibú frá Berlaymont ?
- Heimsbókmenntunum hefur eitthvað hrakað undanfarið
- Mótplasíbó við ESB heilaþvættinum
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Innlent
- Björgunarsveitarmenn fengu tvo fyrir einn
- Kemur vorið á föstudaginn?
- Eins og það væri verið að kasta grjóti í rúðuna
- Segir Ísland hafa alla burði til að gera betur
- Þetta var mikið eldingaveður og er ennþá í gangi
- Maður elti annan með hníf
- Sáum blossann og tókum enga sénsa
- Þrumur og eldingar við Reykjanesskaga
Erlent
- Selenskí kallar eftir auknum þrýstingi á Rússland
- Fundust á lífi í rústunum eftir 60 klukkustundir
- Léku golf og ræddu viðskipti með ísbrjóta
- Ítrekar áhuga sinn á þriðja kjörtímabilinu
- Hann er blaðamaður, ekkert annað
- Skjálfti af stærðinni 7 við Tonga
- Trump: Rekur ekki fólk vegna falsfrétta eða nornaveiða
- Skotum hleypt af í unglingapartíi
Fólk
- Richard Chamberlain látinn
- Fer yfir 44 ára feril á fjölunum í góðra vina hóp
- Fólk virðist ekki fá nóg af lögunum þeirra
- Raðmorðinginn er faðir minn!
- Heilbrigð og hamingjusöm á ný
- Ætla að sjá hvort sambandið sé eitthvað sem er þess virði að berjast fyrir
- Aðdáendur gagnrýna Grace Jackson fyrir nýjustu fegrunarmeðferðir
- Aron Can hljóp maraþon á mettíma
Athugasemdir
Það er nú alveg óþarfi Árni, sjálfur hafði ég pínulitlar efasemdir um þessa framkvæmd. En mér finnst nú samt æskilegt að álit Skipulagsstofnunar sé faglegt í hvívetna og hún taki tillit til álitsgjafanna.
Gunnar Th. Gunnarsson, 19.5.2008 kl. 19:02
Ég gleymdi nú að minnast á það í pistlinum að Skipulagsstofnun lepur upp vitleysuna í virkjunarandstæðingunum um að framkvæmdin sé ekki afturkræf, því það er hún þó hægt verði að sjá með herkjum að eitthvert rask hafi orðið akkúrat þar sem mannvirkin hefðu staðið.
Gunnar Th. Gunnarsson, 19.5.2008 kl. 21:18
Og þar með er hún ekki afturkræf, ekki satt? Spurningin var hvort eitthvert rask yrði eða ekki og auðvitað verður rask á svæðinu.
Annars eru helstu rök mín á móti svona framkvæmdum að við verðum líka að hugsa um komandi kynslóðir en ekki bara akkúrat okkar. Við verðum líka að hugsa um framtíðina og vera aðeins víðsýnni í því hvernig við búum til atvinnu og náum í fjármagn til landsins.
Pétur Kristinsson, 19.5.2008 kl. 23:51
Ef það á að horfa í það að mögulega sé hægt að sjá ummerki eftir framkvæmdir og þar með sé ekki hægt að tala um að framkvæmdin sé afturkræf, þá getum við alveg eins hætt algjörlega að tala um að afturkræfar framkvæmdir séu yfir höfuð til.
Við erum að hugsa um komandi kynslóðir með því að búa þannig í haginn fyrir þær að hér séu lífskjör góð á sem flestum sviðum og framkvæmdir af þessu tagi stuðla að því. Það er ekki þar með sagt að við eigum að einblína eingöngu á virkjanir og stóriðju, enda er það ekki gert.
Veistu Árni, Bitruvirkjun er mér ekki hjartans mál, en Kárahnjúkavirkjun var það, það viðurkenni ég fúslega. Og að nýta náttúruauðlindir á skynsamlegan hátt fyrir þá íbúa sem að þeim búa er auðvitað hið besta mál. En ég held að Bitruvirkjun skipti engum sköpum, hvort hún verði eða ekki. Hins vegar finnst mér að Skipulagsstofnun hafi hugsanlega lagt einhverja línu um hvernig þetta verður í framtíðinni með jarðvarmavirkjanir. Ef það á að nýta jarðvarmaorkuna á háhitasvæðunum, þá verður alltaf um einhverja náttúruspillingu að ræða og á háhitasvæðum eru gjarnan hverir o.þ.h.
Náttúruverndarsinnarnir segja nú, að orrusta hafi unnist, en stríðið sé hvergi nærri búið. Er það ekki vísbending um það sem koma skal hjá Skipulagsstofnun?
Gunnar Th. Gunnarsson, 20.5.2008 kl. 01:28
Það sem mér finnst standa uppúr varðandi neikvæð áhrif svona virkjunar á umhverfið er hávaðinn. En þó er ekki sýnt fram á hversu mikill hann verður í dölunum sunnan við, sem eru virkilega skemmtileg svæði. Ég hefði mestar áhyggjur af þeim. Að öðru leyti er ég að mestu ósmmála áliti Skipulagsstofnunnar.
Já allar þessar rannsóknir á svæðinu koma e.t.v. að gagni síðar, ef ekki við Bitru, þá vonandi annarsstaðar. Það liggur mikil fjárfesting í allri þessari rannsókarvinnu.
Gunnar Th. Gunnarsson, 20.5.2008 kl. 04:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.