Í mínum huga er öruggt að líf sé annarsstaðar en á jörðinni, en það er jafn öruggt í mínum huga að vitsmunaverur hafa aldrei heimsótt okkur, á okkar líftíma. Til þess eru líkurnar of "stjarnfræðilega" litlar.
Það eru ekki bara fjarlægðirnar í geimnum sem ættu að leiða okkur að þessari niðurstöðu, heldur einnig tíminn. Ég er ekki bara að tala um tímann sem það tekur að ferðast um vetrarbrautirnar, sem er auðvitað mikil hindrun í sjálfu sér, heldur þarf tímasetningin á líftíma stjarnanna og þróun lífsins að vera á sameiginlegum tíma og okkar.
Nú hefur verið "hlustað" eftir merkjum sem berast með ljóshraða frá hugsanlegu lífi í geimnum í nokkra áratugi og ekkert heyrist. En það er ekki þar með sagt að einhver merki séu ekki á leiðinni til okkar. Þau gætu hafa lagt af stað fyrir þúsundum eða miljónum ára en eru bara ekki komin til okkar enn. Einnig er möguleiki að hingað hafi borist einhver merki, bara áður en við gátum hlustað eftir þeim, á tímabilinu frá árinu t.d. 1950- 5.000.0000.000. fyrir krist.
Lífið á jörðinni hefur verið einhverja miljarða ára að þróast og alheimurinn skilst mér er ekki "nema" 10-12 miljarða ára gamall, þ.e. frá Miklahvelli. (Leiðréttið mig ef þetta er misminni) Það hlýtur að vera frekar líklegt að líf sé tiltölulega lengi að þróast frá einfrumungum til vitsmunalífs. Og þó það sé líf á þeim stjörnum sem við gætum hugsanlega heyrt einhver merki frá, þá er ekki þar með sagt að þar sé vitsmunalíf, en það verður það kannski eftir einhvern x-tíma.
Ef svo merkilega vildi til að einhversstaðar séu svo háþróaðar lífverur að þær geti ferðast með hraða ljóssins, þá hefur það ekki gerst allt í einu. Við hlytum að hafa heyrt frá þeim einhverjar útvarpsbylgjur, löngu áður en þær römbuðu til okkar í eigin persónu.
Og afhverju ættu þessar vitsmunaverur að ramba hingað? Það er ekki eins og það sé hörgull á stöðum fyrir þær að skoða. Stráin í heystakknum eru voðalega fá í samanburði við stjörnurnar í geimnum.
Vatíkanið segir ekki hægt að útiloka líf á öðrum hnöttum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 945809
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Ranghugmynd dagsins - 20241122
- Syndafallið í Biblíunni - Aldingarðurinn Eden tilraunastofa, höggormurinn var sennilega sprauta með erfðabreytiefni - eins og Covid sprauturnar.
- Píratar
- Ingu Sælands ríma
- Djúp lægð
- Geti ekki brotið verkfallslög
- Vinstri hreyfingin sjálfstætt kvennaframboð.....
- Við eigum að gera betur.
- Ranghugmynd dagsins - 20241121
- Kvenfrelsunarflog Ríkisútvarpsins
Athugasemdir
Það gengur hægt hjá þér að fá þátttöku í könnuninni. Þú átt að enda hverja færslu á að minna á hana. Ég er kominn með nýja könnun, gjörðu svo vel. Sú pólitíska endaði svona:
Lesandi bloggsins míns er pólitískt:
Vel til vinstri 12,4%
Heldur til vinstri 31,4% 43.8
Um miðbikið 15,5%
Heldur til hægri 17,0%
Vel til hægri 9,3%
Ópólitískur 8,2%
Annað 6,2%
194 hafa svarað
Friðrik Þór Guðmundsson, 16.5.2008 kl. 16:26
p.s. þú ert næstum kominn með 48% til vinstri hjá þér! bráðum hreinn meirihluti. hvað var þetta aftur með skítaflugurnar?
Friðrik Þór Guðmundsson, 16.5.2008 kl. 16:27
Hehe, yea right. Ég vil hafa yfir 300 í könnuninni. Ég hef verið svo duglegar að gera athugasemdir á þinni síðu að sennilega hef ég dregið marga þaðan yfir á mitt blogg. Þetta hlýtur að lagast eitthvað
Gunnar Th. Gunnarsson, 16.5.2008 kl. 17:14
50 komnir í könnunina, 250 to go. Örlítill bati á vinstri slagsíðunni þinni; úr 48% í 46%. Enn ekki nema 36% til hægri. Miðbikið hefur sótt á hjá þér. Enn sem komið er þá eru okkar hópar svipaðir en þinn bara meira til vinstri. Gunnar!
Friðrik Þór Guðmundsson, 16.5.2008 kl. 22:57
Þetta kemur...
Gunnar Th. Gunnarsson, 17.5.2008 kl. 03:57
Annars langar mig til að fá athugasemdir um þá fullyrðingu mína að það séu engar líkur á því að vitsmunarverur hafi einhverntíma komið til okkar á jörðina
Gunnar Th. Gunnarsson, 17.5.2008 kl. 04:05
Já, fyrirgefðu. Þú átt við aðrar en Jarðneskar vitsmunaverur? Alheimurinn er einn búkur og venjulega halda örverur sér á sínum stað. Þær geta þó undir einhverjum extreme kringumstæðum farið annað, t.d. ef skortur er á blóðkornum eða eitthvað.
Við erum örverur og búkurinn sem við búum í er stór!
Friðrik Þór Guðmundsson, 17.5.2008 kl. 10:57
p.s. ætlarðu að festast í 52? Ég gæti hringt í nokkra vini og kunningja, en ég er ekki viss um að þú viljir þeirra hjálp...
Friðrik Þór Guðmundsson, 17.5.2008 kl. 10:58
Áfram Valur!
Gunnar Th. Gunnarsson, 17.5.2008 kl. 14:15
Það eru engu minni líkur á að "vitsmunaverur" hafi heimsótt jörðina á síðustu tvö þúsund árum eða svo, en að guð almáttugur, sem t.d. bæði þú og Vatikanið hafið mikið í huga, sé til!En þetta ætti nú spekingurinn þú að vita, sem segist hafa lesið svo mikið af bókum!
Magnús Geir Guðmundsson, 17.5.2008 kl. 23:17
Gunnar, ný könnun hjá mér, sem þú ættir að prufa þegar hin er komin í 300 voters:
Spurt er
Friðrik Þór Guðmundsson, 17.5.2008 kl. 23:19
Jæja Gunnar, þú ert kominn í 75 stykki í könnuninni um pólitíska afstöðu lesenda blogg-síðu þinnar. Og þú virðist höfða mjög vel til vinstrisinnaðs fólks; með 45% slíka á móti 37% hægrisinnum. Hlutföllin 44-26 hjá mér og ég aðallega með stærri miðju-hóp.
Það er kannski ekki nema von að þú viljir sítera í Egil Helga!
Friðrik Þór Guðmundsson, 20.5.2008 kl. 14:56
Já, ætli það sé ekki vegna þess að vinstrimenn hafa þinglýst eign sinni á náttúruvernd, í von um að það dragi að sér fleiri kjósendur, og ég er duglegur við að blogga um umhverfismál.
Gunnar Th. Gunnarsson, 20.5.2008 kl. 16:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.