Ríkir og nískir

Einn af borpöllum StatoilHydro undan strönd Noregs. Norðmenn eru ríkastir allra þjóða en þrátt fyrir það eru skattar háir og ýmislegt gert til þess að að kroppa fé af almenningi, t.d. eru vegatollar nokkuð víða í Noregi.

Ég tók eftir því um daginn, í umræðuþætti forsætisráðherra Norðurlandanna, að sósíaldemókratinn Stoltenberg, réttlætti háa skattaprósentu í Noregi því þeir stæðu undir undir velferðarkerfinu. Hann sagði stoltur frá því að kratar og háir skattar fylgust að. Á Íslandi er skattprósentan lág og ekki er velferðarkerfið síðra hér. Reyndar hafa vinstrimenn hér kvartað undan því að skattar hafi aukist og hvergi meira en hér á undanförnum árum. Ef það er raunin, afhverju taka sósíaldemókratar í Noregi ekki upp íslensku aðferðina, ef þeir eru svona hrifnir af háum sköttum? Hækka bara skattana með því að lækka þá! Málið leyst!


mbl.is Gríðarlegur hagnaður hjá StatoilHydro
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Kristinsson

Ef að eingöngu er horft á tekjuskatta erum við lægri heldur en norðmenn og danir en á móti kemur að við erum með alls konar aðra skatta sem verða til þess að Ísland fer vel upp fyrir þessar þjóðir. Stjórnvöld hérna hafa einmitt viljað horfa bara í tekjuskattinn þegar að talað er um lága skatta hér en það er bara hálfur sannleikur. Hátt verðlag kemur til af háum tollum og sköttum. Olíuverð er hátt skattað hér. Þú borgar skatt af vöxtunum þínum. Erfðaskattur hérna er fáránlegur. Síðan eru alls konar nefskattar sem koma til eins og til dæmis fyrir RÚV.

Þetta er ástæðan fyrir því að Ísland er dýrasta land í heimi og alls enginn skattaparadís. Það er jú ástæða fyrir því að fólk sækir til norðurlandanna þrátt fyrir hærri tekjuskatt þar. Það er nefnilega annað sem kemur til en tekjuskatturinn sem segir bara hálfa sögunna.

Pétur Kristinsson, 13.5.2008 kl. 17:03

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Olíuskattar eru lægri hér en víðast annarsstaðar. Tollar svipaðir, sumir lægri, sumir hærri. Skattar af vöxtum (fjármagnstekjuskattur) er mun lægri hér en nánast allstaðar annarsstaðr eða 10%. Sumir vilja hafa sömu skattprósentu á hann og laun.

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.5.2008 kl. 17:23

3 Smámynd: Pétur Kristinsson

En samt dýrasta land í heimi. Ef að skattar og tollar eru lægri hér en annarsstaðar hvaða skýringu hefur þú á því? Af hverju er þá ungt fólk að leita til þessara landa með  "hærri" skatta?

Pétur Kristinsson, 13.5.2008 kl. 17:29

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Matvæli og áfengi, flutningskostnaður, álagning smásalans í sumum tilfellum og nú síðast lágt gengi krónunnar, gerir land okkar skelfilega dýrt. Og tollar í sumum tilfellum, sérstaklega á vörur sem eru reiknaðar inn í vísitölu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.5.2008 kl. 18:17

5 Smámynd: Pétur Kristinsson

En Ísland var dýrasta land í heimi meðan að gengi krónunnar var hátt líka þannig að þessi rök falla um sig sjálf. Af einhverjum ástæðum er flutningskostnaður ekki eins hár og í færeyjum og í grænlandi þannig að maður getur ekki keypt þessa skýringu. Það er eitthvað annað að hérna á Íslandi. Kannski eru það stjórnvöld, maður spyr sig sem sjálfstæðismaður vegna þess að kannski eru ítök markaðsaflanna alltof sterk inní flokkinn sem gerir það að verkum að ekkert er gert gagnvart neytandanum vegna þess að fjármagnseigendurnir í flokknum vilja ekkert gera í þessum málum. Kannski samsæriskenning en andskoti líkleg því að fátt annað skýrir aðgerðarleysi yfirvalda.

Pétur Kristinsson, 13.5.2008 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband