Hönnuð til að endast í 100 ár

Það er margt athyglisvert við þessa brú sem Mbl.is er ekki að láta fylgja með í fréttinni. Samkvæmt The Hindu , Online edition of India´s National Newspaper, var brúin einungis opnuð til prufu. Þung farartæki, vörubílar og farartæki sem flytja hættuleg efni eru ekki leyfð af öryggisástæðum. Ekki hefur verið ákveðið hversu lengi prufuopnunin muni standa yfir en talsmaður yfirvalda segir það fara eftir ástandi brúarinnar, hvernig hún reynist og þeim tíma sem hugsanlega þarf til endurbóta.

2008050251811701

Bygging brúarinnar kostaði um 127 miljarða ísl. kr. og í fyrsta sinn í Kína koma einkaaðilar að framkvæmd sem þessari, en þeir fjármagna um 30% af kostnaðinum. Við brúnna var einnig byggð vatnshreinsistöð en á svæðinu í kringum brúnna búa 72,4 miljónir manna og full þörf á mengunarvörnum við flóann.

ningbo_hangzhou_shanghai_bridge

Reiknað er með að brúin dragi að sér mikinn fjölda ferðamanna.

image03gu4

Útsýnispallur með veitingastað er við brúna

xinsrc_4721002071553078585685 

Þetta er stórglæsilegt mannvirki en merkilegt að endingin sé ekki nema 100 ár. Sennilega kemur þreyta í burðarvirkið sem er náttúrulega gríðarlegt og erfitt við það að eiga.

Sundabrú takk! Ekki göng


mbl.is Ein lengsta brú í heimi opnuð í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi brú tengir Ningbo við Jiaxing, en Ningbo er þar sem margir íslendingar verða í haust, að læra kínversku.

Margrét Þórðardóttir (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 18:42

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta Óþ.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.5.2008 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband