Árni enn í ó-göngum

frettamynd220Árni fékk nægjanlegt fylgi í Suðurkjördæmi til þess að komast á þing á ný, þrátt fyrir að sýna enga iðrun þegar hann var nappaður fyrir þjófnað. Hann setti bara upp svip fórnarlambsins, þetta var allt saman öðrum að kenna. Ég vona að Árni snúi sér að einhverju öðru þegar þessu kjörtímabili lýkur, því hann á ekkert erindi í pólitík. Það tekur ekki nokkur málsmetandi maður mark á honum lengur.

Ég er nú talsmaður þess að fólk fái annan séns, þó því verði á í lífinu, en til þess að svo megi verða þá þarf fólk að hafa lært sína lexíu. Það er ekkert sem bendir til þess að Árni hafi gert það, en ég vona að það hafi kjósendur hans í Suðurkjördæmi gert.

arni-oryggisvordur

Þó Árni fengi eflaust ekki vinnu sem öryggisvörður, þá hef ég ekki áhyggjur af honum þó hann missi þingmannsdjobbið. Honum er margt til lista lagt og hefur sýnt að hann leggur ekki árar í bát þó gefi "á-ann" Whistling

 


mbl.is Ætlar að kæra Árna Johnsen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég ætla ekki að tjá mig um téðan mann en ég skrifaði um þennan gjörning um daginn og má lesa um það hér

Sævar Einarsson, 27.4.2008 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband