Vonlaust

Mér finnst það svolítið magnað þegar tvær þjóðir deila, önnur myndar sjálfstætt ríki en hin ekki, og ósjálfstæða þjóðin viðurkennir ekki tilvist ríkis þeirrar sjálfstæðu. Hamas samtökin lofa, að gegn því að farið sé að öllum kröfum þeirra, þá muni þeir náðarsamlegast veita Ísraelsmönnum 10 ára vopnahlé.

Að þeim tíma liðnum, geta þeir þá byrjað hryðjuverk sín að nýju, til þess að hrella Ísraela á brott með morðum á óbreyttum borgurum, konum og börnum? Maður spyr sig.

En er það ekki morgunljóst að frumskilyrði fyrir samningum milli tveggja aðila er að samningsaðilar viðurkenni tilvist hvors annars?

carter_hamas

Splunkuný teikning við þessa frétt. Blekið er enn blautt í henni.


mbl.is Hamas viðurkennir ekki Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki ný frétt að Hamas séu tilbúnir að samþykkja viðrkenna Ísrael, grundvallað á ldnamærunum fyrir 1967. það er langt síðan að fulltrúar Hamas lýstu yfir þessari afstöðu. Það hefur hins vegar ekki átt mikið upp á pallborðið hjá vestrænum fjölmiðlum að skýra frá þessu. Jafnvel Fatah gæti ekki farið fram á minna en Palestínuríki byggt á landamærunum 1967, og dirfist ekki heldur að gera annað, þar sem það er lágmarkið sem Palestínumenn geta sætt sig við. Það er líka í samræmi við viðhorf Sameinuðu þjóðanna og við alþjóðalög, þar sem hernámið er skilgreint sem ólöglegt. Við þetta má bæta að þátttaka í kosninugnum, sem grundvölluðust á Oslóar-samkomulaginu er de facto viðurkenning á Ísraelsríki. Ég minni einnig á að Ísrael hefur aldrei fallist á tilverurétt frjáls lífvænlegs Palestínuríkis.

Sjálfur skrifaði ég grein um þetta efni, bæði afstöðu Hamas, landráð Fatah, hvernig Ísraelsk stjórnvöld heltu olíu á eldinn og mikilvægi þess að rétt sé við lögmætt kjörna fulltrúa palestínsku þjóðarinnar undir nafninu "Að deila og drottna", en hún birtist í lesbók Morgunblaðsins laugardaginn 28. júlí 2007.

Þessi fyrirsögn netmoggans þykir mér misvísandi og til þess fallin að endurtaka gamla tuggu.Khaled Meshaal fer einfaldlega fram á meira en að væntanlegt Palestínuríki verði grundvallað á landamærunum 1967. Hann leggur sumsé einnig áherslu á rétt flóttamanna til að snúa aftur. Kolbrjáluð krafa, ekki satt? Að öðru leiti þá er þetta alveg í samræmi við það sem var nefnt hér á undan. Hvernig ættu leiðtogar Palestínu að geta horft fram hjá rétti flóttamanna til að snúa aftur til Palestínu, rétti sem eru skýlaus mannréttindi þeirra samkvæmt alþjóðalögum: http://en.wikipedia.org/wiki/Right_of_return#Palestinian

Í ályktun Sameinuðu þjóðanna nr. 194 frá 11. desember 1948 var samþykkt að Palestínumenn hefðu rétt til að snúa til heimkynna sinna og alþjóðaþingið árið 1974 úrskurðaði sama þing það "skýlausan rétt" (inalienable) right" þeirra. Hins vegar virðast ályktanir alþjóðaþingsins ekki vera bindandi skv. alþjóðalögum. Genfarsáttmálinn frá 1949 styður einnig rétt þeirra. Ályktun öryggissráðsins nr. 242 leggur áherslu á "mikilvægi þess að leysa flóttamannavandann. Alþjóðasáttmáli um borgaraleg og pólitísk réttindi kveður á um að "engan skuli svipta rétti sínum til að koma inn í sitt eigið land". Í kafla 13.2 í Mannréttindasáttmála sameinuðu þjóðanna segir:"(1) Allir hafa rétt til að vera frjálsir ferða sinna innan landamæra hvers ríkis

(2) Allir hafa rétt til að yfirgefa hvaða ríki sem er, þar með talið þeirra eigið, og til að snúa aftur til heimalands síns."

Ísraelar neita Palestínumönnum um bæði.

Ég birti svo grein 49 í 4. Genfarsáttmálanum hér á ensku:

"Individual or mass forcible transfers, as well as deportations of protected persons from occupied territory to the territory of the Occupying Power or to that of any other country, occupied or not, are prohibited, regardless of their motive.

Nevertheless, the Occupying Power may undertake total or partial evacuation of a given area if the security of the population or imperative military reasons do demand. Such evacuations may not involve the displacement of protected persons outside the bounds of the occupied territory except when for material reasons it is impossible to avoid such displacement. Persons thus evacuated shall be transferred back to their homes as soon as hostilities in the area in question have ceased (leturbreyting mín).

The Occupying Power undertaking such transfers or evacuations shall ensure, to the greatest practicable extent, that proper accommodation is provided to receive the protected persons, that the removals are effected in satisfactory conditions of hygiene, health, safety and nutrition, and that members of the same family are not separated.

The Protecting Power shall be informed of any transfers and evacuations as soon as they have taken place.

The Occupying Power shall not detain protected persons in an area particularly exposed to the dangers of war unless the security of the population or imperative military reasons so demand.

The Occupying Power shall not deport or transfer parts of its own civilian population into the territory it occupies."

Hér má lesa sáttmálann í heild sinni: http://www.unhchr.ch/html/menu3/b/92.htm

Lesa nánar um rétt Palestínumanna til að snúa aftur til heimkynna sinna á Wikipediu: http://en.wikipedia.org/wiki/Right_of_return#Palestinian

Þapsem á eftir fylgir (á ensku) er tekið þaðan:

"Akram states that since 1948, the principles of the internationally binding right of return have been strengthened by their inclusion in numerous treaties, many of which bind Israel as a signatory. The right of return is expressly recognized in most international human rights instruments, including, Article 13.2 of the Universal Declaration of Human Rights (1948); Article 12.4 of the ICCPR; Article 5.d.ii of the CERD, 7 March 1966; Article VIII of the American Declaration of the Rights of Man, Organization of American States (OAS), Res. XXX, OAS Official Records, OEA ser. L/w/I.4 (1965), Article 22.5 of the American Convention on Human Rights, 1144 UNTS 123, 22 November 1969; Article 12.2 of the African Charter on Human and Peoples' Rights, 1981, 21 ILM 59, 1982; and Article 3.2 of Protocol 4 of the European Convention for the Protection of Human Rights and Fundamental Freedoms, 213 UNTS 221, 1950."

Einar Steinn Valgarðsson (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 13:39

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þennan fróðleik Einar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.4.2008 kl. 17:16

3 identicon

Hamas hefur sagt að muni aðeins viðurkenna Ísraelsríki með landamæri frá 1967 en sjáðu Ísraelsk stjórnvöld þau neita að viðurkenna Palestínu

Bestu kveðjur

Jón Þórarinsson

Jón Þórarinsson (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 07:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband