Áhyggjuefni

Hlutföll glæpamanna og löghlýðinna hafa ekki raskast í Bretlandi. Umræðan á Íslandi er nákvæmlega eins og í öðrum löndum um innflytjendur. Ef ég man rétt, þá hefur lögreglan hér á landi komist að sömu niðurstöðu í lauslegri könnun, þ.e. að miðað við fjölda innflytjenda hér á landi séu glæpamenn í svipuðu hlutfalli og meðal þjóðarinnar sjálfrar.

Vinnufélagi minn í Grunnskóla Reyðarfjarðar er pólsk og hefur búið á Íslandi í nokkur ár. Henni þykir mjög leitt þegar hún sér fjölmiðlaumfjöllun um landa sína hér sem gerst hafa brotlegir við lög. Hinir löghlýðnu pólsku borgarar hér taka það nærri sér, þegar þjóðerni brotamannsins er gert að aðalatriði málsins.

Fordómar gagnvart útlendingum í dag, í góðu atvinnuástandi, gæti breyst í eitthvað annað og meira en bara fordóma ef verulega kreppir að hér á vinnumarkaði. Þá verður fjandinn laus.


mbl.is Pólska glæpaaldan er goðsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband