Drengir eru árásargjarnari

1894076Ég er sannfærður um að kynbundin hegðun er að verulegu leyti kynjunum í blóð borin, þó að félagslega mótun hafi einnig að sjálfsögðu áhrif.

Ég vinn með krökkum á aldrinum 6-10 ára og ég sé greinilega hve líkamleg hreyfiþörf er mismunandi eftir kynjum, sérstaklega þegar krakkarnir eru utan dyra eða í knattspyrnuhöllinni. Strákar elska að reyna með sér í líkamlegri baráttu um leikföng, bolta eða bara að takast á. Hjá þeim er styrkur og snerpa eftirsóknarverður eiginleiki. Stelpur fara frekar í hlutverkaleiki á mjúku nótunum.

Ég hef efasemdir um að æskilegt sé að hefta of mikið eðlislæga hegðun. Náttúran verður að hafa sinn gang upp að vissu marki. En það er líka óþarfi að láta börnin festast í stereótýpískum kynhlutverkum.


mbl.is Vísbendingar um eðlislægan áhuga stráka á „strákaleikföngum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Verð að vera sammála þér þarna. Stelpur og strákar, konur og karlar.. við erum ekki eins. Það er bara staðreynd sem þarf að viðurkenna og þá geta allir slakað örlítið á.

Jóna Á. Gísladóttir, 8.4.2008 kl. 01:02

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Sammála.

Villi Asgeirsson, 8.4.2008 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband