Íbúafjölda meðal þorps út á landi er "eytt" á hverju ári. Fyrir okkur sem ekki þurfum að standa frammi fyrir svo stórri ákvörðun, að eyða lífi sem er byrjað að þroskast í móðurkviði, er ómögulegt að setjast í dómarasæti. Okkur getur þótt þetta siðferðilega rangt, eða sjálfsagður réttur hverrar konu að ráða yfir líkama sínum og þar með lífi annarra, en í dómarasæti setjumst við ekki. Hvert tilfelli fóstureyðingar er einstakt og þó ég sé í hjarta mínu á móti fóstureyðingum, þá hvarflar ekki að mér að troða þeirri skoðun minni uppá aðra. Ég skil vel að aðstæður fólks geti verið þannig að í huga þess sé þetta eina leiðin. Þeirra er völin og kvölin.
Eitt af því sem menn hafa deilt um, er hvenær hægt sé að kalla líf, líf. Ég blanda mér ekki í þá umræðu. Menn virðast sjá það út frá mismunandi sjónarhóli.
849 fóstureyðingar árið 2006 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 64
- Frá upphafi: 946017
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 59
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Athafnasaga Ingvars Vilhjálmssonar
- Bæn dagsins...Orðtök um hyggindi..
- Er hún í réttu starfi og réttu landi ?
- 24 titlar ManCity á 13 árum ...
- Hvað gerðist?
- Forsendan fór fyrir lítið
- Skatta- og gjalda hækkanir framundan hjá ríki, sveitarfélögum og fyrirtækjum
- Að festast í gíslingu ofstækisfólks
- Höfundur þessarar síðu óskar hér með allri heimsbyggðinni GLEÐILEGRA JÓLA með söng þessarra huggulegu kvenna:
- Jólakveðjur af svölunum eru ódýrari en hjá Rúvsinu
Athugasemdir
hmmmmmm
Einar Bragi Bragason., 31.3.2008 kl. 12:42
Hvernig myndir þú rökstyðja að einsleitur frumuklasi án heila- eða taugafrumna gæti kallast líf?
Kristján Hrannar Pálsson, 31.3.2008 kl. 12:48
Það er auðvitað líf, en afar frumstætt.
Gunnar Th. Gunnarsson, 31.3.2008 kl. 12:51
Athyglisverð skýringarmynd!!!!......þessi fjöldi fóstra hugsa ég að samsvari nú meira en íbúafjölda meðalþorps, gæti trúað að íbúar þess væru 400-500, án þess þó að hafa neitt nema tilfinninguna á bak við það.
Haraldur Bjarnason, 31.3.2008 kl. 12:56
Það að segja að fóstur sé ekki líf af því að það er ekki kominn með ákveðinn þroska er bara eins og að segja að það sé allt í lagi að berja ungabörn afþví að þau muna ekki eftir því.
Það eru rosalegar tölur að sjötta hvert barn sem getið er á Íslandi fái ekki að fæðast.
Baldur (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 13:20
Fyrir manneskju sem ekki getur átt barn eða búið til fóstur þá er þetta erfið frétt að lesa. Það er ekki boðið upp á ættleiðingar hér á Íslandi. Til að ættleiða barn þarf að leita útfyrir landssteina. Þetta er átakanlegt, sama hvernig á það er litið bíst ég við.
linda (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 13:42
Svo má hugsa sér hversu hrikalegt það væri að vera nauðgunarfórnarlamb í landi þar sem fóstureyðingar eru bannaðar og þurfa að ganga með barn nauðgara síns!
Elís Traustason (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 14:03
Sammála þér Linda, en í frjálsu landi er þetta leyfilegt og ég vil nú meina að læknisfræðin sé hæfust til þess að ákveða það hversu langt meðganga er kominn til þess að segja að þarna sé sjálfstætt líf orðið til frekar en prestar og lögfræðingar. Er ekkert verra að vera búinn að lesa medical embryology bókina áður en fólk telur sig vita hvernig meðganga virkar.
Pétur Kristinsson, 31.3.2008 kl. 14:09
Held að skilgreiningin sé svona?
Vísir að fóstri (líf?) byrjar við getnað
Fóstur er vísir að barni og líf er fóstur í fyrstu 3 mánuðina
Fóstur er vísir að barni eftir 12 vikur
Eftir 28 vikur er talað um barn, ekki fóstur
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 31.3.2008 kl. 23:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.