Stephen Glass

image552673g

Í öllum starfstéttum finnast fúskarar, lygarar og glæpamenn, en það vekur óneitanlega sérstaka athygli þegar flett er ofan af slíku fólki úr blaðamannastéttinni.

Stephen Glass var rísandi stjarna í blaðamannastétt árið 1998. Hann var vinsæll dálkahöfundur hjá hinu virta tímariti The New Repuplic. Hann var einnig leigupenni fyrir ýmis önnur heimsþekkt tímarit, aðeins 25 ára gamall. Þegar í ljós kom að hann hafði skáldað frá grunni frétt eina um tölvuhakkara, með tilvitnunum í fjölda manna sem ekki voru einu sinni til, um ráðstefnu tölvuhakkaranna og samtök sem ekki voru heldur til, þá fór boltinn að rúlla. Þegar farið var að rannsaka verk hans, kom í ljós að af 41 grein sem hann hafði skrifað fyrir The New Repuplic á þriggja ára tímabili, voru 27 hreinn skáldskapur. Gerð var bíómynd um Glass og svikamillu hans, afar vönduð og vel leikin mynd.

Skyldu vera til einhverjir íslenskir Stephen Glass-ar? Það er hæpið, það hlýtur að vera ómögulegt að búa til persónur og taka viðtök við þær í svona litlu samfélagi.

Að vísu hafa blaðamenn á Íslandi oft orðið uppvísir að óvönduðum vinnubrögðum og stundum skýla þeir sér á bak við eitthvert ákvæði í lögum um að vernda heimildarmenn sína, ef þeir vilja ekki upplýsa um þá.

 Friðrik Þór Guðmundsson, þekktur og vinsæll Moggabloggari, titlar sig "rannsóknarfréttamann" í Kastljósi. Í einum pistli hans á blogginu, Gasklefa-aftökueitrið Sýaníð á Reyðarfirði  fjallar hann um að honum hafi verið bent á...

"...að úr kerbrotum álversins á Reyðarfirði, sem til urðunar fara, muni renna hið baneitraða Sýaníð út í fjörðinn fallega (þann fegursta á íslandi auðvitað) og ógna þar lífríki. Mér skilst að þetta hafi farið fyrir umhverfismat en ekki verið talið nógu svívirðilegt til að taka á því"....  "Í umsögn Hollustuverndar ríkisins við umhverfismat kom fram að frá fyrirhuguðum urðunarstað fyrir kerbrot verði gert ráð fyrir því að óbundið cýaníð renni til sjávar í rúmlega fjörtíu sinnum þeim styrk sem leyfilegur er í söltu vatni samkvæmt erlendum stöðlum sem vísað er til í matsskýrslu. Hollustuvernd ríkisins telur þó að þynning í sjó verði nægjanleg til þess að ná tilsettum mörkum innan þess þynningarsvæðis sem framkvæmdaraðili hefur lagt til".

Í athugasemdarkerfinu er þessi fullyrðing auðvitað hrakin sem tóm vitleysa. Það verða engin kerbrot urðuð í Reyðarfirði. Í samræmi við umhverfisstefnu Alcoa Fjarðaáls verða öll kerbrot send til Bretlands þar sem þau verða endurnýtt sem hráefni til sementsframleiðslu. lillo_3

Ég spurði Friðrik hver hefði "lekið" þessum upplýsingum í hann. Og svarið var: "Gunnar, ég man ekki hver "lak" í mig. Það gæti hafa verið 9 ára Framtíðarlandsguttinn sem er að mótmæla olíuhreinsistöð í eyjunni Vigri".

Nú er ég hvorki að bera saman Stephen Glass og Friðrik Þór Guðmundsson, né að leggja að jöfnu blaðamannsstarf hans og blogg í frístundum, en ég get þó ekki hætt að velta því fyrir mér, hver hafi "lekið" þessum upplýsingum í Friðrik. Það sjá allir að það var ekki 9 ára Framtíðarlandsguttinn og tilgangurinn með þessum rakalausa þvætting hlýtur að hafa verið annarlegur. Ekki var tilgangurinn að koma á framfæri gagnlegum upplýsingum til almennings um álver Alcoa á Reyðarfirði, svo mikið er víst.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband