Gott mál, en....

Frá blaðamannafundi samgönguráðherra í dag.Það vekur athygli mína að tvöföldunin byrjar ekki fyrr en við Litlu Kaffistofuna, sem þýðir að flöskuháls myndast þaðan og í Árbæjarhverfi. Einnig finnst mér einkennilegt að tvöföldunin nái bara til Hveragerðis, en mörg alvarleg slys hafa orðið á leiðinni milli Hveragerðis og Selfoss.
mbl.is Tvöföldun hefst 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Einhvers staðar verður að byrja, en það er skrítið að byrja ekki fyrr en við kaffistofuna og hætta við Hveragerði. Þar er ég sammála.

Villi Asgeirsson, 13.3.2008 kl. 19:28

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Samgönguráðherra kom reyndar með þá skýringu í kvöld að tvöföldunin milli Hveragerðis og Selfoss væri flóknari framkvæmd og þyrfti frekari undirbúning, en sé á dagskrá í náinni framtíð. Gott mál

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.3.2008 kl. 21:36

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Kannski það. Ég man ekki eftir neinum sérstaklega flóknum köflum milli Hveragerðis og Selfoss, en ég er enginn sérfræðingur. Kannski er jarðvegurinn of mjúkur? Þetta kemur allt.

Samt finnst mér liggja meira á hinum endanum, Reykjavíkurmegin. Er ekki málið að tvöfalda niður á Vesturlandsveg og losa sig við hringtorgið við Rauðavatn?

Villi Asgeirsson, 14.3.2008 kl. 08:02

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Umhverfismatið mun vera flóknara Hveragerði/Selfoss m.a. vegna þess að mörg sveitarfélög koma þar að málum. Ég veit svo sem heldur ekkert, er bara að éta þetta upp eftir samgönguráðherra. En Rvk megin verður bara vesen að tvöfalda ekki strax, sammála þér þar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.3.2008 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband