Þverpólitísk samúð

Það hefur komið mér á óvart hve mikillar þverpólitískrar samúðar Vilhjálmur Þ. nýtur meðal stjórnmálamanna í Reykjavík. M.a.s. V-grænn kunningi minn einn, dæmigerður, ber blak af Villa og segir hann hafa verið einn heilasti og heiðarlegasti stjórnmálamaður sem hann hafi kynnst. Hægt var að treysta orðum hans út í ystu æsar.

 

Margir segja að ekki sé tilefni til þeirrar heiftar sem núverandi stjórnarandstaða og þá sérstaklega V-grænir hafa sýnt. Auk þess sé eftirsjá í verkefninu sem slíku. þ.e. útrásar og sameiningarverkefni REI-Geysir Green. Það er spurning hvort conseptið allt í sambandi við þá vinnu, sé glatað tækifæri eða bara sett á ís í óákveðinn tíma. En því lengur sem verður hjakkað og andskotast í sama farinu í umræðunni um þetta mál, því meiri líkur eru á að útrásartækifærin glatist og það er öruggt að þau hafa orðið fyrir hnjaski nú þegar.

Það er sorglegt að flekklausum pólitískum ferli í aldarfjórðung, ljúki með þessum hætti og spurning sem þeir sem unnið hafa með Vilhjálmi, þurfa að svara hver fyrir sig; "Vil ég það?".

 Umræðunni um Vilhjálm hefur vinstri sinnað fólk stjórnað undanfarnar vikur og mánuði. Nú þegar Vilhjálmur hefur ákveðið að stíga ekki til hliðar þá finnst mér mál að linni. Vilhjálmur hefur sagt "Við látum verkin tala", og þar með er komið tækifæri til þess að gagnrýna. Dagur B. og Co. eiga nú að setja sig í málefnalegar stellingar og gagnrýna málefnalega. Aðeins þannig getur Dagur B. orðið að "Degi A".


mbl.is Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson víkur ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband