Ef þú hrærir í skítnum....

Guðni Ágústsson. Ef þú hrærir í skítnum, þá verður þú að þola lyktina og Bingi hefur verið duglegur að hræra. Nú reyna Björn Ingi og  formaður Framsóknarflokksins að höfða til samúðar almennings með flokknum með því að stilla Birni upp sem fórnarlambi. Manninum sem skildi eftir sig sviðna jörð hvar sem hann fór, eftir því sem Guðjón Ólafur sagði.

Auðvitað getur almenningur sem ekki starfar í Framsóknarflokknum tekið neina afstöðu til innanbúðarmála í flokknum, þar hljóta að vera fleiri hliðar á málum en kemur fram í fjölmiðlum en tilraun formannsins til þess að draga upp fórnarlambsmynd af Birni hlýtur samt að mistakast.

Ef Framsóknarflokkurinn lifar af þær hremmingar sem hann hefur gengið í gegnum á undanförnum misserum, þá er mikið í hann spunnið.


mbl.is Framsóknarmenn slíðri sverðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Athygli mína vekur vanþroski borgarbúa. það eru ennþá tæp 26% á bak við nýjan meirihluta D og F í borgarstjórn samkv. skoðanakönnun Fréttablaðsins. Mér hefði nú fundist 2,6% eðlilegra.

Árni Gunnarsson, 24.1.2008 kl. 11:09

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei Árni, það eru 52% á bak við meirihlutann. Skoðanakannanir eru ekki kosningar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 24.1.2008 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband