Ráðhúsbyltingin hin síðari

Ráðhúsbyltingin hin síðari vekur hjá mér blendnar tlfinningar.  Að sæmd og heiður stjórnmálamanna sé ekki á hærra plani en svo, að þeir hiki ekki við að rifta sáttmála um meirihlutastjórn, bara ef þeir sjá færi á persónulegum völdum og vegtyllum. Að það skuli vera svona auðvelt að möndla með völd á þennan hátt, fram og til baka, að allt geti breyst á einum degi ef einhver kemur með lúmska uppástungu. Fámenn klíka metur stöðuna þannig að það sé pólitískt klókt að rifta öllum samningum og handsala og skrifa undir nýja. 

 Sjálfstæðismenn þurfa ekki að taka þátt í svona leik. Ég er kannski svona grænn, en mér hugnast ekki baktjaldamakk. Það er fínt að vera pólitískt klókur, en klókindin meiga aldrei yfirskyggja heiðarleika og ærlegheit.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð fyrirsögn  - hugsa sér að svona getur þetta litið út í kennslubókum í sögu þegar fram líður

ee (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 02:29

2 Smámynd: Benedikt V. Warén

Það er hæpið að segja "......hin síðari" þegar ljóst má vera að þær verði trúlega fleiri á kjörtímabilinu. 

Benedikt V. Warén, 23.1.2008 kl. 18:00

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Í dag er hún hin síðari en það þarf ekki að koma á óvart þó það verði ein til eða fleiri

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.1.2008 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband