Enn af Dúmbó

001

Meira vesenið á Dúmbó! Hálskraginn sem við fengum hjá dýralækninum reyndist ekki nógu stór! Allt var þó í lagi fyrstu tvo sólarhringana en svo hefur Dúmbó farið að klæja í skurðinn og á ótrúlegann hátt þá tekst honum að teyja löppina nógu langt fram til þess að hans langa tunga getur sleikt skurðinn og meira að seigja nær hann að naga í fremstu saumspottana sem standa upp úr.

 Þar sem við komumst ekki til Egilsstaða í dag til þess að fá stærri kraga, þá gripum við til þess ráðs að vefja sárabindi um sárið svo þetta fái einhvern frið til morgunns. Dúmbó er óttalega kjánalegur í þessum útbúnaði og horfir á okkur með ásökunaraugnaráði: "hvað eruð þið eiginlega að gera mér?". Jæja, hann þakkar okkur seinna Happy


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband