skilnaður

Eldri maður á Reyðarfirði hringdi í son sinn í Reykjavík í dag og sagði að honum þætti leitt að eyðileggja fyrir honum áramótin, en hann vildi bara láta hann vita að hann og móðir hans hefðu ákveðið að skilja. "Fjörtíu ára eymd er nóg", sagði sá gamli.

Það þyrmir yfir soninn og hann verður alveg miður sín.

"Við þolum ekki hvort annað og ég þoli ekki einu sinni að tala um þetta. Hringdu í hana systur þína og segðu henni frá þessu svo ég þurfi þess ekki", segir faðirinn.

Sonurinn hringdi felmtri sleginn í systur sína sem einnig býr í Reykjavík og segir henni tíðindin. Systirin varð öskureið og sagði " Þau fara sko ekki að skilja á gamals aldri! Ég skal sko tala yfir hausamótunum á þeim!", og hringir með það sama í gömlu hjónin. Hún nánast öskrar í símanum og segir "Þið skiljið sko ekki neitt!. Þið gerið ekki nokkurn skapaðan hlut þar til ég kem til ykkar! Heyriði það!? Ég hringi aftur í bróa og við verðum þarna bæði á morgunn!".

Gamli maðurinn lagði símann á og snýr sér að konu sinni. "Ok, þau verða hérna bæði á morgunn og verða þá með okkur yfir áramótin..hehe...og borga farið sjálf.

unclesam_laugh


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður

Hólmdís Hjartardóttir (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 01:39

2 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

he he he he he

Einar Bragi Bragason., 30.12.2007 kl. 14:23

3 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Ég hélt að þetta væri sönn saga að rúsínunni.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 31.12.2007 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband