Hárrétt hjá Bjarna Fel

Bjarni Fel. les fréttir.Eiður Smári er óumdeilanlega besti knattspyrnumaður landsins í dag en það gerir hann ekki sjálfkrafa að efni í fyrirliða. Hann hefur sjálfur beðist undan því hlutverki, nú undir það síðasta.

Handboltalandsliðið hefur gengið í gegnum svipaða fyrirliðakrísu. Á sínum tíma þótti öllum sjálfsagt að Kristján Arason væri fyrirliði en hann baðst undan þeirri ábyrgð því honum fannst sjálfum hann ekki spila eins vel á vellinum undir þeirri pressu. Ef ég man rétt þá var svipað upp á teningnum með Ólaf Stefánsson á sínum tíma.

Hermann Hreiðarsson kemur til greina í þessa stöðu en þó held ég að æskilegast væri að fá nýtt blóð í stöðuna, ásamt ýmsum öðrum róttækum breytingum á skikkan mála hjá knattspyrnulandsliðinu. Það þarf að opna út og hleypa fersku lofti inn í þetta staðnaða og fúla andrúmsloft sem umlykur KSÍ, innan og utan vallar. Byrja mætti á því að segja upp núverandi formanni KSÍ, og leggja upp með fagleg vinnubrögð. Stjórnendur eiga að vinna undir þeirri pressu að ef hlutirnir eru ekki að ganga upp, þá eiga aðrir að taka við.


mbl.is Bjarni Fel: Eiður veldur ekki leiðtogahlutverkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband