Hverjir segja þetta?

Náttúruverndarsinnar vara við að regnskógar Amazon geti verið í hættu.  Einhversstaðar sá ég ekki fyrir svo löngu síðan að skógar hafa EKKI minnkað á jörðinni sl. 10 ár. Þegar ég las meira í þessari frétt sá ég að þessi fullyrðing, "að meira en helmingur regnskógarins gæti eyðst fyrir 2030", er frá náttúruverndarsamtökunum World Wildlife Fund (WWF). 

Ýmis samtök sem kenna sig við náttúruvernd eru háð frjálsum framlögum almennings og þau hafa fyrir löngu komist að því að því meira sem hægt er að krydda fréttir um hugsanlega vá,  t.d. dýr í útrýmingarhættu (hvalir) því meira fé streymir í sjóðina.

"Björgum regnskógunum" er búið að vera ábatasamt slagorð í mörg ár og það versta sem fyrir fjárhagslega afkomu þessara fyrirtækja getur komið, sem gera út á náttúruverndarsjónarmið, er ef almenningur áttar sig á því að e.t.v. er váin ekki eins alvarleg  í dag og hún leit út fyrir að vera fyrir ekki svo löngu síðan.

 

mban765l


mbl.is Meira en helmingur Amazon regnskógarins gæti eyðst fyrir 2030
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Það skyldi þó ekki vera að þetta sé einmitt svolítil hystería?

Sigurjón, 8.12.2007 kl. 22:58

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það læðist óneitanlega að manni grunur

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.12.2007 kl. 23:38

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já það er hægt að benda á einstök svæði þar sem rányrkja fer fram en víða er um sjálfbæran timburiðnað að ræða. Það verður að líta á heildarmyndina.

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.12.2007 kl. 01:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband