Friður og öryggi

Töluvert hefur verið um það að ungverskir sérfræðingar hafi komið að uppbyggingu álversins hér á Reyðarfirði. Einnig hefur Alcoa sent marga Íslendinga til Ungverjalands í starfsþjálfun, þó flestir séu sendir til Kanada og reyndar fleiri landa. 2006_09_aereal_small

Um daginn náði ég í Ungverja á innanlands og alþjóðaflugvöllinn á Egilsstöðum. Ég stóð við dyrnar þar sem farþegarnir komu inn í flugstöðina, með nafn mannsins á A4 blaði og þegar maðurinn kom auga á nafnið sitt, virtist hann afar feginn því hann hafði lent í dálitlum hremmingum við komuna til Íslands. Hann var að koma til landsins í fyrsta sinn og í Keflavík hafði hann beðið í nokkra klukkutíma, einn og umkomulaus. Einhver misskilningur hafði orðið um það hvað hann ætti að gera við komuna, hélt að það yrði tekið á móti sér. Hann vissi ekkert, nema að verksmiðja Alcoa var ekki í Keflavík og ekki í Reykjavík. Að lokum fékk hann leiðbeiningar um að taka rútu til Reykjavíkur og að koma sér á innanlandsflugvöllinn þar og tékka sig inn í bókað flug til Egilsstaða.

Á leið okkar til Reyðarfjarðar var létt yfir manninum, sem var eitthvað á sextugs aldri. Hann spurði heilmikið um land og þjóð og virtist afar áhugasamur. Hann hafði orð á því að honum hefði strax liðið afskaplega vel á Íslandi. Hann sagðist skynja hér frið og öryggi og það væri nýlunda fyrir sig að sjá ekki vopnaða menn um allt á flugvöllum, eins og hann væri vanur í Evrópu.

Einangrun okkar ástkæra lands og fámenni er auðlind í sjálfu sér sem margir Íslendingar vanmeta. Stundum þarf glöggt gestsauga til þess að opna manns eigin fyrir þessu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband