Requiem - Gabriel Fauré

200px-Gabriel_Faure

Í Dag kl. 17.00 verða haldnir tónleikar í Kirkju og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Flutt verður Requiem eftir Gabriel Fauré (1845-1924) Myndin að ofan er portrait af Fauré, máluð af John Singer Sargent, um 1889. Flytjendur verksins eru Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásam Glerárkirkjukór frá Akureyri og nokkrum félögum úr kirkjukórum á Austurlandi. Ég nýt þeirra forréttinda að vera einn af nokkrum félögum úr kirkjukór Reyðarfjarðar til að syngja þetta frábæra verk. Einsöngvarar og einleikarar koma einnig fram, m.a. Gillian Hayworth á óbó, skólastjóri Tónlistarskólans á Reyðarfirði. Hreint frábær óbóleikari.

Flest þekktustu tónskáldin sömdu Requiem (minningarverk) eftir pöntun, en ekki Fauré, því eins og hann orðaði það sjálfur: " I wrote it for the pleasure of it".  Requiem verk eru oft há-dramatísk og jafnvel drungaleg en þetta verk er hátíðlegt og jafnvel gleðilegt.

Ég hlakka óskaplega til að flytja þetta verk ásamt þeim mörgu frábæru tónlistarmönnum sem fylla munu sviðið í Eskifjarðarkirkju í dag. Ég skora á alla tónlistarunnendur að láta þennan menningarviðburð ekki fram hjá sér fara.

Góða Skemmtun!

Ps. Sennilega hefur Fauré ekki orðað þetta svona á ensku, því hann var franskur (ég bara kann ekki frönsku Wink)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar R. Jónsson

Það er hreint út sagt djöfullegt að vera í sjálskipaðri útlegð þegar svona nokkuð er sett upp fyrir austan.

Gunnar R. Jónsson, 3.11.2007 kl. 12:25

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Nú vantar mig þyrlu.

En ég neita ekki að nú öfunda ég þig íhaldskurfurinn þinn.

Njóttu!

Árni Gunnarsson, 3.11.2007 kl. 16:59

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Tónleikarnir heppnuðust afar vel fyrir fullu húsi gesta. Eftir allar æfingarnar undanfarnar vikur er sérkennileg tilfinning að nú sé þetta búið.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.11.2007 kl. 15:30

4 Smámynd: Gunnar R. Jónsson

Gott að heyra, til hamingju með þetta!

Gunnar R. Jónsson, 4.11.2007 kl. 19:19

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta er einhver fallegasta músik í heimi. Til hamingju!

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.11.2007 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband