Feðgaferð á landsleikinn

Jökull Geir sonur minn og ég erum að leggja í hann til höfuðborgarinnar og ætlum á landsleikinn við N-Íra á morgunn. Jökull æfir fótbolta með 4. fl. Vals á Reyðarfirði en hann hefur aldrei farið á landsleik fyrr. Ekki einu sinni komið inná Laugardalsvöll. Okkur feðgunum hlakkar mikið til og þó veðurspáin sé ekkert sérlega hagstæð, þá látum við ekki slíka smámuni spilla gleðinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Einarsson

Sælir feðgar.

Ég verð að segja ykkur frá því þegar ég og minn sonur fórum á landsleikinn við Spán til að vara ykkur við því til þess eru vítin, að varast þau. Í öllum bænum ekki kaupa ykkur miða í stúku I eins og við. Þar má væntanlega búast við "stemmingsliði KSÍ" sem er ekki stemmingslið heldur drukknir menn með ösköpin öll af þokulúðrum, trommusettum, trompetum, básúnum og gjallarhornum. Við feðgar fórum heim í hálfleik þar sem hávaðinn og drykkjulætin gengu fram af okkur.

Ég hef farið á stóra fótboltaleiki út um alla Evrópu, mest í Englandi og Portúgal og aldrei lent í öðru eins. Mig og strákinn sem er 10 ára og æfir með 6.flokki FH verkjar enn í eyrun og við ætlum að horfa á leikin í sjónvarpinu.

En..... það á alltaf að vera gaman að fara á landsleik og ég vona að þið verðið heppnir með veður, leik, úrslit og áhorfendur.

Góða skemmtun !  

Jóhannes Einarsson, 11.9.2007 kl. 14:42

2 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Takk fyrir innlitið

Arnfinnur Bragason, 13.9.2007 kl. 23:19

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk sömuleiðis Arnfinnur

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.9.2007 kl. 15:26

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

´Jóhannes, ég sá einmitt þetta "stemningslið" í nyrðri enda stóru stúkunnar og sagði við son minn að ég væri feginn að vera ekki í hávaðanum þarna. Sonur minn samsinnti því.

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.9.2007 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband