Kann Ingibjörg Sólrún ekki að vera utanríkisráðherra?

"Rússnesk stjórnvöld hafa boðist til að hefja viðræður við Íslendinga um öryggis- og björgunarmál á Norður-Atlantshafi".

Ég hefði haldið að þetta gætu orðið forvitnilegar viðræður, en ISG lætur ekki svo lítið að svara þessu, enda gat  sendiherra Rússlands á Íslandi, Viktor I. Tatarintsev, ekki leynt gremju sinni á að Rússar hafa ekki fengið svör við tilboðinu frá íslenskum stjórnvöldum. Hvernig er svoleiðis framkoma flokkuð á diplómatamáli? Dónaskapur?

Ekki eru margir dagar síðan ISG ákvað að kalla "herlið" Íslendinga heim frá Írak. Þessa ungu stúlku sem gengdi stöðu upplýsingafulltrúa hjá utanríkisráðuneytinu. Verkefni hennar var að ljúka í Írak, svo ekki var seinna vænna fyrir ISG að kalla hana heim. Þá sýndi utanríkisráðherrann snör handtök og uppfyllti þar með skyldu sína sem fyrrverandi stjórnarandstöðuþingmaður. Enginn skyldi geta sagt að hún væri ekki maður orða sinna.


mbl.is Rússar vilja öryggissamstarf við Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kann hún það nokkuð frekar en annað?

Jóhann Elíasson, 8.9.2007 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband