Smá fróðleikur um Reyðarfjörð

Tók þetta af vef Fjardabyggdar . Myndin er úr vefmyndavél vegagerðarinnar í Oddskarði. Sést niður í Reyðarfjörð og nesið sem er örlítið hægrameginn við miðju er Hólmanesið við minni Eskifjarðar.

 

Reyðarfjörður er stærstur Austfjarða um 30 km. langur enda eru hafnarskilyrði eru hin ákjósanlegustu frá náttúrunnar hendi í firðinum.  Innst í fjarðarbotninum er samnefndur bær, sem áður var nefndur Búðareyri.  Búðareyri varð löggiltur verslunarstaður árið 1890. Reyðarfjörður er nú hluti Fjarðarbyggðar. oddsskard_1

Enda þótt sjávarútvegur og fiskvinnsla hafi verið töluverð á Reyðarfirði hér áður vógu þessar greinar ekki hlutfallslega jafn þungt í atvinnulífi staðarins eins og í flestum öðrum sjávarbyggðum austanlands. Verslun, þjónusta og samgöngur skiptu verulegu máli einkum þegar vegasamband við Fljótsdalshérað komst á og verslun héraðsmanna fluttist á Reyðarfjörð.

Nú er útgerð og fiskvinnsla hverfandi en atvinnulífið byggist á ört vaxandi þjónustu og byggingastarfsemi vegna byggingar álvers Alcoa og Kárahnjúkavirkjunar. Höfuðstöðvar Vegagerðar ríkisins á Austurlandi eru á Reyðarfirði svo og aðalskrifstofa Fjarðarbyggðar. Samskip er með fastar áætlunarsiglingar til Reyðarfjarðar.

 

Áhugaverðir staðir í Reyðarfirði

 

Íslenska stríðsárasafnið.

Stríðsárin eru eitthvert litríkasta tímabilið í íslenskri menningarsögu á síðari öldum. Þau nutu lítillar virðingar lengst af en hafa loks fengið uppreisn æru. Bretar hernumu Reyðarfjörð í síðari heimsstyrjöldinni, þar var fjölmennt setulið og víða stríðsminjar að finna. Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði var reist, árið 1995, í þeim tilgangi að gera fólki kleift að ferðast aftur til daga hersetunnar og ýmist rifja upp gömul kynni eða stofna til nýrra.Safnið er opið daglega frá 1.júní til 31.ágúst frá kl. 13:00 - 18:00 alla daga vikunnar. Utan þess tíma, eftir samkomulagi við safnvörð.

 

Hólmanes.
Fólkvangur á nesinu milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Þar er mikið fuglalíf og sérkennilegar bergmyndanir. Afar ánægjulegur staður til útiveru, hvort sem er í klettum eða fjöru.

 

Völvuleiðið.
Efst í Hólmahálsinum, nokkru ofan við veginn er leiði völvunnar sem hefur verndað Reyðarfjörð og Eskifjörð frá utanaðkomandi árásum um aldir.

 

Grænafell.
Skjólsæll og vinalegt svæði undir kjarrivöxnum hlíðum Grænafells skammt vestan við bæinn. Auðveld stikuð gönguleið á fellið meðfram afar fallegu gili Geithúsaár.

Andapollurinn
Andapollurinn er lítil tjörn við bæinn, sem eldisfiski er sleppt reglulega í.  Seldi eru veiðileyfi í Veiðiflugunni.  Við tjörnina er tjaldsvæði bæjarinns

 

Þrívörður.
Upplýsingamiðstöð Fjarðarbyggðar og Fjarðaáls skammt ofan þjóðvegar við Sómastaði. Þar er hægt að fræðast um framkvæmdir við álverið auk þess að upplýsingar um Fjarðabyggð almennt eru veittar þar.

 

Þjónusta á Reyðarfirði.
Öll almenn þjónusta við ferðamenn er góð á Reyðarfirði. Þar eru dagvöru- og sérvöruverslanir, söluskálar, bifreiðaverkstæði, hótel, gistiheimili, vínbúð, lyfjaverslun, kvikmyndahús, heilsugæslustöð o.fl.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband