Sjaldan launar kálfurinn ofeldið

Jón Sigurðsson sagði aðspurður í gær þegar hann og Geir tilkynntu stjórnarslitin, að um engan trúnaðarbrest hefði verið að ræða. Guðni Ágústsson er reyndari í pólitík en Jón og það er hann sem leggur línurnar í þessu máli. Nú þegar útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verður í jonsigstjórnarandstöðu a.m.k. næstu 4 ár, þá er ekki eftir neinu að bíða. Nú skal herjað á samstarfsflokknum til 12 ára með öllum tiltækum ráðum. Manni dettur í hug máltækið "sjaldan launar kálfurinn ofeldið".

Framsóknarflokkurinn var tilbúinn í nýtt stjórnarsamstarf, þrátt fyrir aðeins eins þingmanns meirihluta, en Sjálfstæðisflokkurinn ekki. Það er ekkert flóknara en það. Stutt símtal formanna D og S í fyrradag getur varla flokkast sem trúnaðarbrestur, þá væru allir flokkarnir seldir undir þá sök. Þetta eru eðlileg viðbrögð flokks sem er í sárum og nákvæmlega þau sömu og Alþýðuflokkurinn sýndi 1995. En athyglisverð þóttu mér sættir Guðna og Steingríms J. í Kastljósinu.

Það er hlýtur að vera tært í hugum margra vinstrimanna að Steingrímur J. hafi með afglöpum sínum komið í veg fyrir möguleika á myndun vinstristjórnar. Þau afglöp verða aldrei gleymd né fyrirgefin. Fylgi VG hefur að margra mati snúist að mestu um sterkan foringja, án Steingríms væri flokkurinn hvorki fugl né fiskur. Þetta "græna kvenfélag" eins og Pétur Tyrfingsson kallar orðið VG mun eiga afar erfitt uppráttur á komandi misserum.


mbl.is Jón Sigurðsson: Staðfestir trúnaðarbrest milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru skiljanleg en ekki stórmannleg viðbrögð. Ofeldið er annars það sem hefur komið kálfinum mest í koll í kosningunum. Fólki ofbauð svo gersamlega þegar þessum litla flokki tókst að troða formanni sínum í forsætisráðherrastöðu. Ofeldið kann líka að valda erfiðleikum í viðræðum D og S þar sem það er nánast útilokað að gera hlut S meiri en B nema með því að S fengi meira í sinn hlut en D og það getur ekki gengið miðað við stærðarhlutföll flokkanna (25 18).

Skúli Víkingsson (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 13:40

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þegar D og B mynduðu stjórn 2003 var ráðherrastólunum skipt jafnt. S er stærri en B var þá.  En ég trúi ekki að ISG leggjist jafn lágt og Halldór gerði, að vilja forsætisráðuneitið hálft kjörtímabil.

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.5.2007 kl. 13:49

3 identicon

Gunnar er ekki allt í lagi !!  Er alveg sama hvernig X-D kemur fram, laumuspil er staðreyndin og trúnaðarbrestur af hálfu þinna manna líka en með veikum mætti þá reynir þú að telja þér trú um annað. Þetta eru líkt og hjá öfga- múslimum þessi trúarbrögð við sjálfstæðisflokkinn hjá þér það er sama hvernig þeir koma fram. Ég ætla rétt að vona þeir stingi ekki upp á því að þið farið að sprengja ykkur á almannafæri, bara svona fyrir flokkinn. Þú yrðir fyrstur manna í það, því miður.  Hvílíkt rugl.

Arnar Ævarsson (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband