Íbúðalánasjóður varðaði veginn

Menn deila um orsök og afleiðingu bankahrunsins 2008.

Að mínu mati var orsökin firring bankaeigenda og stjórnenda þeirra. Ekki bara hér á Íslandi, heldur um allan hinn vestræna heim og  þó víðar væri leitað.

Alþingismenn nánast allir, að sjálfsögðu undanskyldum þingmönnum VG, kynntu undir firringuna í ræðu og riti. Fjölmiðlar tóku að mestu svikalaust undir. Og að lokum var það almenningur sem fullkomnaði glæpinn með neyslu sem hann tók að láni.

Íbúðalánasjóður starfaði í þeim anda sem ríkti í þjóðfélaginu á þessum tíma og átti erfitt með að slíta sig frá græðgisvæðingunni sem grafið hafði um sig í huga fólks, þar sem mottóið var "Allt fyrir ekkert!", eða því sem næst.

Bankarnir biðu átekta. Þeir fóru ekki á fullt skrið á húsnæðismarkaðinum, með gengdarlausum auglýsingum um ágæti penninganna sem þeir voru tilbúnir að rétta ÞÉR á afar hagstæðum kjörum, fyrr en íbúðalánasjóður hafði varðað veginn. Auk þess áttu allir að verða ríkir á hlutabréfakaupum og þess vegna var kjörið að lána fyrir kaupum á þeim. Lán var veitt til alls, sama hversu vitlaus hugmynd lá að baki.

Allir hljóta að sjá að það græða ekki allir nema raunveruleg verðmætaaukning eigi sér stað. Það er engin verðmætaaukning fólgin í því að fjárfesta í einhverju sem gengur ekki upp, þ.e. skilar ekki með einhverjum hætti til baka, aurunum sem fóru í verkefnið.

 


mbl.is 90% lánunum ekki um að kenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Stærstur hluti þeirra peninga er tapast hafa töpðuðust vegna þess að sjóðurinn sat uppi með krónur (skiluðum lánum) en skulduðu í erlendum gjadmiðli.

Síðan var fjármögnun sem ekki þurfti á að halda (70 ma) + það að þeir peningar voru svo lánaðir bönkunum.... sem þýddi að þeir komu tvöfalt til baka og yrðu því fyrir "forsendubresti" eins og allar aðrar krónur.

Það er því ekki um eginlegt tap að ræða heldur fremur að gengið féll og skuldirnar uxu því hraðar en eignirnar.

Óskar Guðmundsson, 10.7.2013 kl. 11:25

2 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Góð færsla að mestu sammála, en eins og þú veist er ekkert að marka bloggara samkvæmt því sem forsetinn sagði í gær.

Kristbjörn Árnason, 10.7.2013 kl. 13:24

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

En voru það ekki stjórnmálamennirnir sem tóku ákvörðunina að fá braskarana og vildarvini sína bankana í hendur?

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur bera meginábyrgð á ógæfunni. Á þeim bæjum ríkir afneitun og þeim fyrri hafa verið boðuð kosningaloforð í stíl við lýðskrumarann Berlúskóní.

Guðjón Sigþór Jensson, 11.7.2013 kl. 20:58

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er orðinn leiður á að slást við vindmillur

Gunnar Th. Gunnarsson, 12.7.2013 kl. 03:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband