Lilja Mós er harður vinstrimaður en veit sem er að "lógóið" er ónýtt.
Það er ljótt af henni að sigla undir fölsku flaggi.
![]() |
AGS varð besti vinur VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 10.3.2012 (breytt kl. 14:12) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.9.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Krabbamein bresku konungsfjölskyldunnar. Ræða Malhotra læknis á fundi Reform
- Skrímslabangsar? Er nokkuð jákvætt við þá annað en að þeir eru skrýtnir og öðruvísi?
- 31 milljarði og 40 ungabörnum fórnað til að bjarga einu barni frá RS vírus
- Lyftum íslensku lambakjöti
- Hvers vegna?
- Hvert sem við förum eltir dauðinn okkur.
- Umdeildur yfirmaður sleppur með skrekkinn, Sigríður J., undirmaðurinn sem fékk samúð þjóðarinnar er rekinn. Spilling í sinni tærustu mynd
- Með fjórðung fylgis
- Boðorð trans Samtakanna 78
- Niðurrif komin á dagskrá
Athugasemdir
Gunnar. Bæði vinstri og hægri hugtökin eru úrelt og hættuleg hugtök fyrir samstöðu og velferð ólíkrar heildarinnar.
Ég er þakklát fyrir að hafa ekki ennþá látið blekkingar-áróður leiða mig á þá villubraut stjórnmálanna, að einungis sé pláss fyrir sérhagsmunaklíkur en ekki pláss fyrir hagsmuni heildarinnar á öllum stigum.
Gangi Lilju Mósesdóttur sem best í sinni baráttu fyrir samstöðu heildarinnar, ásamt öllum sem styðja samstöðu heildarinnar, sem er svo ráðvillt og sundruð sem raun ber vitni.
Það er eitthvað mjög sérstakt við Lilju Mósesdóttur, sem samræmist algjörlega minni réttætistilfinningu. Ég er sem betur fer með skoðana og tjáningar-frelsi, sem eru gífurleg forréttindi á Íslandi og heiminum öllum í dag.
Ég starfa á mínum eigin vegum með mínar eigin hugsjónir, og styð opna og fræðandi umræðu og réttlæti fyrir alla.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.3.2012 kl. 16:07
Hægri/vinstri er mjög góð skilgreining á pólitík. Þeir einu sem halda öðru fram eru yfirleitt vinstrimenn. Hvernig ætli standi á því?
Gunnar Th. Gunnarsson, 10.3.2012 kl. 16:51
Gunnar. Getur þú útskýrt þetta aðeins betur fyrir mér?
Hvernig getur einhver flokkað bæði hægri og vinstri undir sama pólitíska vænginn?
Getur verið að svokallaðir vinstri-menn hafi farið illa út úr réttlátri skiptingu á auðæfunum, einhversstaðar í svikulu græðgiskrefinu?
Þú útskýrir þetta vonandi fyrir mér, fávísu kerlingunni!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.3.2012 kl. 19:06
Hægri/vinstri eru reyndar tveir vængir, hægri og vinstri.
Hvað er réttlát skipting? Hægri og vinstri hafa gjarna deilt um það.
-
Græðgi er löstur en jafnframt drifkraftur. Regluverk um viðskipti þarf að vera sanngjarnt, heiðarlegt og byggjast á jöfnum möguleikum.
Vinstri/hægri deila einnig um skilgreininguna á þessum þáttum.
Gunnar Th. Gunnarsson, 10.3.2012 kl. 22:05
Pólitíkin er eiginlega hringur eða klukkuskífa. Þar sem 6 er miðjan og svo verða menn harðari hægri eða vinstrimenn eftir því sem þeir standa nær 12, hvor á sínum væng. Á 12 standa svo öfgamennirnir. kommarnir og fasistarnir hlið við hlið, hönd í hönd, enda eru þessar stefnur í eðli sínu sami grauturinn. Þar er Lilja stödd og getur hallað sér á báðar hliðar án þess að bregða skoðun.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.3.2012 kl. 16:53
Þessi skilgreining er mikil einföldun.... hef svo sem heyrt hana áður.
Kommar eru vissulega lengst til vinstri, en fasistar eru EKKERT til hægri, þó finna megi hægri hugmyndafræði í sumum málum hjá þeim.
Gunnar Th. Gunnarsson, 11.3.2012 kl. 23:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.