Vinstrisinnaðir netdólgar hafa farið hamförum vegna viðbragða Haraldar Johannessen við beiðni ríkisendurskoðandans Sveins Arasonar, um að afhenda gögn um viðskipti ríkislögreglustjóra við RadíóRaf.
Netdólgarnir halda því fullum fetum fram að Haraldur hafi NEITAÐ að afhenda gögnin. Engu skiptir þó dólgunum sé bent á það svart á hvítu að Haraldur hefur ekki neitað að afhenda gögnin, heldur einungis farið fram á að Sveinn Arason víki úr stóli ríkisendurskoðanda í þessu máli. Í bréfi innanríkisráðuneytisins 30. nóv. sl. til ríkislögreglustjóra sést þetta skýrt.
Beiðni Haraldar er eðlileg í ljósi offorsins sem Sveinn sýndi, þegar hann gagnrýndi kaup ríkislögreglustjóraembættisins á neyðarútbúnaði lögreglunnar án útboðs, vegna ofbeldisskrílsins í búsáhaldabyltingunni svo kölluðu. Eftir að Ögmundur innanríkisráðherra hafði lagst yfir málið, komst hann að þeirri niðurstöðu að ekkert hefði verið athugavert við verklag ríkislögreglustjóra vegna kaupanna.
Maður spyr sig hvort Sveinn Arason sé í einhverri sérstakri herferð gegn Haraldi Johannessen. Hefur Sveinn einhverjar pólitískar tengingar í stjórnarflokkana?
Fer yfir svör ríkislögreglustjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 6.12.2011 (breytt kl. 13:14) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM:
- Úr munni hestsins
- Erfiðið út í buskann
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
- Það gýs á tveimur stöðum af ólíkum ástæðum
Athugasemdir
Ég efast ekkert um í hvaða herferð Haraldur Johannessen er; en það er ekki í vegi að spyrja Gunnar um hvort honum finnist þá sjálfsagt að hver sá sem lögreglan hefur grunaðan um að hafa farið á svig við lög og reglur; geti krafist þess að Haraldur Johannessen víki úr stól ríkislögreglustjóra?
Halldór Halldórsson, 6.12.2011 kl. 13:37
Ég nenni ekki að svara bull athugasemdum
Gunnar Th. Gunnarsson, 6.12.2011 kl. 15:39
Það þarf að fara fram rannsókn á lögreglunni.
Þetta mál er langt fram því að vera einsdæmi um að heiðvirt fólk standi lögregluna að einhverju vafasömu eða jafnvel ólögmætu.
Ég get til dæmis sjálfur fært fyrir því rök og borið vitni um tilvik þess að lögreglan á höfuðsborgarsvæðinu starfi með skipulögum glæpasamtökum.
Við búum því miður í landi sem stjórnast af lögleysu.
Guðmundur Ásgeirsson, 9.12.2011 kl. 20:17
Mér finnst að þú eigir að koma þessum upplýsingum á framfæri, þ.e. að útlista þetta nánar og með sönnunum. Án sannana er þetta bara ómerkileg kjaftasaga.
Gunnar Th. Gunnarsson, 9.12.2011 kl. 20:24
Það er verið að vinna í málinu, nánari upplýsingar um það verða eflaust birtar þegar það fer í sinn réttarfarsveg. Sem verður á næstunni.
Í millitíðinni vil ég benda þér á færslu Erlings Alfreðs Jónssonar þar sem eru ágætis útlistanir á því hverskonar glæpastarfsemi er um að ræða:
#152. Fyrrverandi forsvarsmenn SP-Fjármögnunar hf. kærðir...
Guðmundur Ásgeirsson, 11.12.2011 kl. 00:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.