Hvað er best fyrir flokkinn og þjóðina?

Það er aðeins ein spurning sem landsfundarfulltrúar þurfa að spyrja sig fyrir komandi formannskosningu, en hún er:

 Hvað er best fyrir flokkinn og þjóðina?

Formaður hvers stjórnmálaflokks dregur hinn pólitíska vagn. Formaðurinn mótar ekki stefnuna, eins og sumir virðast halda. Það gera landsfundarfulltrúar, en formaðurinn hefur að sjálfsögðu áhrif á gang mála. Hann er eðli málsins samkvæmt í lykilstöðu til að vekja athygli á tilteknum leiðum í pólitík og ef formaðurinn er sterkur persónuleiki með skýra sýn á málefnin, þá nýtur stefna hans fylgis meðal flokksmanna.

Það er mikilvægt að stefna Sjálfstæðisflokksins sé einföld og skýr, rétt eins og grunngildi hægristefnunnar. Flókin eða óskýr stefnuyfirlýsing skilar engum árangri. Höfum þetta einfalt, kjósum skýran og skilmerkilegan formann.

Hann Birna virðist töluvert vinsælli kandidat í formannsstólinn meðal kjósenda annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins og sennilega munu vinsældir flokksins aukast í skoðanakönnunum til að byrja með, ef Hanna Birna verður kosin. Það skiptir okkur Sjálfstæðismenn hins vegar engu máli. Vinsældakannanir á milli kosninga eru einskis virði. Næstu vikur skipta heldur ekki máli. Það er framtíðin, sem skiptir máli.

Af tveimur góðum og öflugum forystumönnum Sjálfstæðisflokksins sem nú bjóða sig fram, er Bjarni Benediktsson betri kostur til framtíðar, að mínu mati.


mbl.is Verðum að skapa ný verðmæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þó að ég hefði vel geta sætt mig við B.B. þá sýnist mér betri kostur í boði. Bjarni er hægfara og skoðar hlutinna fram yfir helgi með Jóhönnu.

En stelpan segir strags og gerir. Hún er bara klárari til átaka og að smíða sættir.  Hugsum vandlega til árangur. 

Hrólfur Þ Hraundal, 18.11.2011 kl. 03:41

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er alls ekki sérstakur aðdáandi Bjarna eða andstæðingur Hönnu Birnu. Mér finnst þau bæði mjög góð og í raun er valið erfitt fyrir mig.

Kostir beggja frambjóðenda eru e.t.v. ólíkir. Ég veit ekki almennilega hvernig best er að lýsa þeim. Sumir segja að Bjarni sé varfærin og íhaldssamur en Hanna Birna hvatvís og ákveðin. Hönnu Birnu hefur verið lýst þannig að hún eigi auðvelt með að vinna með fólki með ólíkar skoðanir. Ég tel að Bjarni sé ekki síður þeim kostum búin.

-

Þessa hluti verða landsfundarfulltrúar að meta hver fyrir sig.

"May the best man win"

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.11.2011 kl. 07:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband