Kjötborðið

Þessa auglýsingu sá ég á einhverjum vefmiðlinum.

levi´s

Þegar ég sá þessa mynd þá datt mér í hug saga sem ég las eða heyrði fyrir langa löngu síðan, af mönnum á ferðalagi í Afríku.

Þeir komu í leir og stráhúsaþorp þar sem íbúarnir voru um 100 talsins. Höfðingi þorpsins tók á móti ferðalöngunum og gat talað við þá á frumstæðri og bjagaðri ensku. Hann sagði þeim að fólkið í þorpinu ætti í illdeilum við fólk úr öðrum ættbálki, en það bjó í áþekku þorpi í nokkurra kílómetra fjarlægð.

Í miðju þorpsins var nokkurs konar torg og á því var stór og stæðilegur jarðfastur staur. Þegar ferðamennina bar að garði var ungur karlmaður bundinn kyrfilega við staurinn. Ferðamennirnir staðnæmdust fyrir framan manninn sem var augljóslega viti sínu fjær af hræðslu. Hann var í lítilli lendaskýlu einni fata og á líkama hans hafði verið krotað með svörtum kolalitum, bútar hér og þar, líkt og útlínur rassvasans á myndinni hér að ofan. Þarna voru einnig karl og kona, hjón að því er virtist, sem skeggræddu ákaft með bendingum á ýmsa líkamsparta mannsins, bæði að aftan og framan. Þau virtust ekki vera sammála. Bæði höfðu þau kolakrít tilbúna í hægri hendi.

Ferðamennirnir spurðu höfðingjann hvað væri um að vera og svaraði hann því til að ungi maðurinn á staurnum væri úr óvinaættbálknum og þeir hefðu nýverið tekið hann til fanga. Það væri siður hjá báðum ættbálkunum að óvinurinn var étinn við hátíðlega athöfn ef hann náðist.

Það má því segja að fanginn hafi verið "kjötborðið" í þorpinu þennan daginn en augljóst var að bestu bitarnir höfðu þegar verið fráteknir, því hjónakornin gátu engan veginn komið sér saman um hvað ætti að velja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband