Ég var í sjoppu á Seyðisfirði....

seyðisfj... grillsjopunni í morgun og fékk mér eina pulsu. Mig langaði að drekka Egils appelsín með pulsunni, en sjoppan selur bara gosdrykki frá Vífilfelli.

Má það? Errm

Veðrið skartaði sínu fegursta á Seyðisfirði, sól og blíða og sjoppan var full af skandinavískum unglingum sem komu með ferjunni.

Fjarðarheiðin er alhvít af þykkum snjóalögum og hún hlýtur að vera paradís vélsleðamannsins um þessar mundir.


mbl.is Grunur um samráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Auðvitað eru þessi gosdrykkja-glæpafyrirtæki búin að skipta með sér markaðnum rétt eins og olíuglæpafélögin.

corvus corax, 19.4.2011 kl. 16:44

2 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Skartaði verðið ekki líka sínu fegursta, eins og ég las óvart fyrst?

Kveðja úr slyddunni fyrir sunnan! 

Bergljót Gunnarsdóttir, 19.4.2011 kl. 17:10

3 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Það er ekki óalgengt að sjoppur og jafnvel verslanir selji bara vörur frá einu gosfyrirtæki. Þetta eru aðallega lítil fyrirfæki sem eru neydd til þess því annars fá þau ekki kæli fyrir gosið. Emmess og Kjörís gera þetta líka óspart og þá hafa þessar litlu forretningar enga völ.

Bergljót Gunnarsdóttir, 19.4.2011 kl. 17:18

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta eru glæpsamlegir viðskiptahættir og ekkert annað.

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.4.2011 kl. 18:16

5 identicon

Held að það séu margir á markaðnum sem velja að vera hjá einum aðilanum, allavega grunar mig að það skili sér best til viðkomandi í afsláttum og fleiru, svo er líka til fólk sem verslar bara við annan aðilann af eigin vilja.

en að öðru: annað hafa enga völ? sem eru neydd til þess??

held að enginn neyði viðskiptamann til að gera samning..

það er alltaf fallegt á Seyðisfirði

Símon Sjoppukall (IP-tala skráð) 19.4.2011 kl. 20:28

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þegar "sjoppukarlar" berjast í bökkum, þá eiga hákarlarnir leik á borði.

Það má kalla svona viðskiptahætti eitthvað annað en viðbjóðurinn er sá sami. Og hvers eiga neytendur að gjalda? Taka bara því sem að þeim er rétt?

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.4.2011 kl. 20:58

7 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Ég held að það sé hvergi meiri samkeppni á íslenskum matvörumarkaði en einmitt á milli Vífilfells og Ölgerðarinnar. Ég vann hjá Vífilfelli í 5 ár og það voru stöðug undirboð og afslættir hægri vinstri og alveg á hreinu að kúnnin var ekki að skaðast af því meinta samráði sem nú er verið að bulla um í fjölmiðlum.

Einu einkasölusamningarnir sem ég veit um var á vínveitingarstöum og veitingahúsum en þar eru bæði þessi fyrirtæki jafnsek, og það var klárlega ekki samráð um það hver ætti hvaða staði það var slegist hatrammlega um að selja hvern einasta dropa og aldrei gefin millimetri eftir í því...

Rannsókn samkeppniseftirlitsins er rugl í mínum huga allavega miðað við það sem fyrir mér var brýnt á sínum tíma sem svæðisstjóra Vífilfells á Austurlandi...

Eiður Ragnarsson, 19.4.2011 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband