Veit fólk hvað það er að skrifa undir?

Ég fæ ómögulega séð hvernig það, að leigja nýtingarrétt á auðlind sé slæmt fyrir þjóðina... nema leigusamningurinn sé þá bara lélegur. Þess vegna er það út í hött að stjórnarskrárbinda að ekki megi leigja nýtingarréttinn. Um eignarhald gegnir allt öðru máli.

Ég held að ansi margir sem skrá nafn sitt á þennan undirskriftalista, hafi ekki hugmynd um hvað í honum felst, né hvernig forsprakkar þessa svokallaða átaks, komi til með að túlka og nota hann, í nafni fólksins/þjóðarinnar. 

Og bara það að tala um "vilja þjóðarinnar" í þessu samhengi, setur að mér ákveðinn óhug. Ég hef fengið nasasjón af hugmyndafræði, t.d. Bjarkar Guðmundsdóttur og fleiri aðila sem er áberandi í þessu söfnunarátaki. Ég treysti þeim ekki til að túlka minn vilja.

 


mbl.is Söfnunin heldur áfram í viku í viðbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Mæl þú manna heilastur.

Axel Jóhann Axelsson, 10.1.2011 kl. 00:20

2 identicon



Riftun Magmasamningsins yrði ríkinu svo dýr að maður mætti óttast um auðlindir.

Eins gæti bann við nýtingu útlendinga á auðlindum reynst þjóð á blábrúninni, efnahagslega, slík óhagkvæmni að það setti pressu á auðlindir.

Mér er minna annt um álit fólks á mér heldur en íslenskar auðindir: að þær verði hvorki ofnýttar (td af algerri neyð), seldar né teknar uppí skuldir og bendi því á að Björk og hennar kór eru ógn við auðlindir.

Vilji Íslendingar virkilega gæta að sínum auðlindum, þá hafa þeir
ekki efni á bjánaskap/skrílmennskupólitík.

Öll heimska og skrílmennskupólitík er nefnilega kostnaðarsöm. Og allt sem er kostnaðarsamt fyrir blanka þjóð er vitaskuld bein ógn við auðlindir.

Undirskriftalisti Bjarkar er því, ef eitthvað er, ógn við íslenskar auðlindir.

asdis o. (IP-tala skráð) 10.1.2011 kl. 00:21

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er hins vegar spurning um lengd svona samninga. Persónulega tel ég að ekki eigi að semja til lengri tíma en ca. 20-40 ára í senn.

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.1.2011 kl. 12:22

4 identicon

Ég treysti þeim ekki heldur til að túlka minn vilja, og er ekki of seint í rassinn gripið, ég hélt að salan hefði þegar farið fram?

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.1.2011 kl. 16:16

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Jú, það er nú málið. En hvaða máli skiftir það hver fjárfestir í fyrirtækjum? Eru dollarar og evrur verri peningar en íslenska krónan?

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.1.2011 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband