Indverska

 Það er víst ekkert tungumál til sem heitir "indverska". Hindi er hið opinbera tungumál í Indlandi, en það greinist í margar mállýskur. Auk þess eru mörg fleiri tungumál í landinu, m.a. enska, enda Indland gamalt nýlenduveldi Englendinga.

vegvisir_alverTil álvers Alcoa í Reyðarfirði kemur á nokkurra mánaða fresti, súrálskip með indverskri áhöfn. Ég keyri þá gjarna áhafnarmeðlimina í "bæinn", þ.e. til Reyðarfjarðar, en höfnin er í um 5 km. fjarlægð frá þorpinu.

Það er skondið að heyra þessa kalla spjalla saman, sérstaklega á leiðinni til baka eftir "kaupstaðarferðina". Góðglaðir Indverjar er fyndnir áheyrnar. Uppistandari væri ekki fyndnari. Joyful

Í forvitni minni spurði ég þá hvort tungumál í Indlandi væru almennt eins enskuskotin og ég heyrði, er þeir töluðu sín á milli. Ekki var nóg með að í hverri setningu heyrði ég ensk orð, heldur komu oft heilu setningarnar á ensku hjá þeim.

Sá sem varð fyrir svörum sagði mér þá að allir töluðu þeir Hindi, en þeir kæmu frá ólíkum svæðum á Indlandi og skildu ekki hvern annan nema að sletta svona hressilega.


mbl.is Indversk geimflaug sprakk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ingi Kristinsson

Hélt að byggðakjarninn við Reyðarfjörð héti Búðareyri.

Guðmundur Ingi Kristinsson, 29.12.2010 kl. 23:26

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei, ekki lengur. Ca 40 ár síðan því var breytt

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.12.2010 kl. 00:20

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

... eða breytt og ekki breytt. Núlifandi Reyðfirðing hafa aldrei kallað þorpið annað en Reyðarfjörð. Hins vegar er Búðareyri örnefni í þorpinu miðju og á gömlum sjókortum er byggðakjarninn nefndur eftir því.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.12.2010 kl. 11:57

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Og í gömlum annálum er talað um Búðareyri í Reyðarfjarðarhreppi.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.12.2010 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband