Árið 2001, í baráttu sinni gegn virkjunarframkvæmdunum við Kárahnjúka, létu Náttúruverndarsamtök Íslands gera skýrslu fyrir sig um verkefnið í heild sinni . Skemmst er frá að segja að ekki stendur steinn yfir steini í skýrslunni, enda hefur hún ekki sést frá því hún var birt, utan þeirra nokkurra mánaða sem henni var flaggað ótt og títt af andstæðingum framkvæmdanna.
Eitt af fjölmörgu bullinu sem í skýrslunni var, voru efasemdir skýrsluhöfunda um þróun álverðs í heiminum, eins og gert var ráð fyrir í arðsemisútreiknum Landsvirkjunar, en eins og flestir vita er raforkuverðið tengt heimsmarkaðsverði á áli.
Svo virtist sem bölsýnisspádómar virkjunarandstæðinga væru að rætast seinnihluta árs 2008 og í byrjun árs 2009 og sjá mátti Þórðargleði í skrifum sumra bloggara og í blaðagreinum. Það var broslegt að fylgjast með því. Þegar álverð var lægst á þessum tíma, var áltonnið á um 1.300 dollara og hafði hrapað hratt á nokkrum mánuðum. Þetta mikla hrap á stuttum tíma skýrist væntanlega af fjármálakreppunni sem reið yfir heimsbyggðina árið 2008.
Hér að neðan má sjá þróun álverðs sl. þriggja ára. Eins og sést á línuritinu eru töluverðar sveiflur á þessum markaði, en eins og flestir vita er fjárfesting í iðnaði af þessu tagi, langhlaup en ekki spretthlaup.
Línuritið er fengið HÉR
Ps. Þess má geta að heimsmarkaðsverð á áli var í sögulegu hámarki þegar verðfallið hófst. Hægt er að velja aðra tímaskala á línuritinu á vefslóðinni sem vísað er í.
Útflutningsverðmæti áls eykst um 35% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: stóriðja og virkjanir | 2.12.2010 (breytt kl. 18:15) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 945804
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Kosningagos
- Úkraínustríðið 11 ára
- Hvar er Miðflokkurinn?
- Knockin' On Heaven's Door
- Fyrstu 20 dagar nóvembermánaðar 2024
- Sósíalistaflokkur Íslands - tilraun númer tvö!
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
Athugasemdir
Enn byrjar bla, bla, bla-ið hjá þér. SJÁIÐ ÞIÐ, ÉG HAFÐI RÉTT FYRIR MÉR ALLAN TIMANN, ÞIÐ SEM EKKI ERUÐ SAMMÁLA MÉR, ÞIÐ ERUÐ FÁVITAR ! Ég næ ekki tilgangnum með þessum skrifum þínum sínkt og heilagt, kanski ekki von, því ég er ekki heilaþveginn Alkói...
HStef (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 13:04
Ég næ ekki tilganginum með þessari athugasemd hjá þér, Hjalti.
Gunnar Th. Gunnarsson, 3.12.2010 kl. 13:22
.... hún er hreinlega of vitlaus.
Gunnar Th. Gunnarsson, 3.12.2010 kl. 13:23
Hver er vitlaus...? Og hvar fæst Alkói-heilaþvottaduftið og hvernig notar þú það ? Góða nótt
Hstef (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 15:30
Ég var ekki að tala um að neinn væri vitlaus... ég sagði að athugasemd þín væri það, nú sem yfirleitt endranær.
Gunnar Th. Gunnarsson, 3.12.2010 kl. 15:57
Sæll Gunnar
Ég rakst á þetta blogg þitt þegar ég var að leita eftir álverði, takk fyrir datamine slóðina. Langar samt að benda þér á að áætlanir Landsvirkjunar voru allveg jafn vitlausar, allt fram til ársins 2008 (http://www.landsvirkjun.is/media/2008/2008_01_21_kar_mat_a_ardsemi_fylgiskj.pdf). Spár þeirra um áframhaldandi hækkun álverðs stóðst ekki.
Hálfdán Helgason (IP-tala skráð) 19.10.2012 kl. 17:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.