Ég hef aldrei gagnrýnt fólk fyrir að vera þeirrar skoðunar að of miklu hafi verið fórnað við Kárahnjúka. Ég hef hins vegar reynt að slá á vanþekkingu og misskilning fólks varðandi hin jákvæðu áhrif framkvæmdanna eystra.
Sumt fólk tekur ekki rökum þegar það hefur bitið eitthvað í sig. Það er leitt að slíkt fólk hafi áhrif á þjóðfélagsumræðuna og jafnvel skemmi möguleika fólks, sérstaklega á landsbyggðinni, þar sem tækifærin eru almennt færri til atvinnusköpunar en í þéttbýlinu.
Ennþá heyrast þær fullyrðingar að ekki hafi fjölgað á Mið-Austurlandi, þrátt fyrir framkvæmdirnar. Þetta er einfaldlega rangt. Fólksfjölgunin er nákvæmlega eins og allar spár gerðu ráð fyrir, þ.e. að fólki myndi fjölga um ca. 1.500 manns og reyndar er enn að fjölga.
"Ruðningsáhrif" var vinsælt orð í munni umhverfisverndarsinna, sem skyndilega voru flestir orðnir sérfróðir um efnahags og atvinnumál. Þegar Skinney/Þinganes flutti fiskverkun sína á brott til Hornafjarðar, sagði Steingrímur J. Sigfússon og gat ekki leynt sjálfsánægju sinni: "Sko! Ég sagði þetta! (ekki orðrétt eftir honum haft) Staðreyndin var hins vegar sú að brotthvarf hornfirska fyrirtækisins frá Reyðarfirði hafði ekkert með aðrar framkvæmdir á svæðinu að gera.
Í janúar sl. birtist umfjöllun um M-Austurlandi í Fréttablaðinu. Rætt var við fólk og það spurt m.a. út í upplifun sína á samfélaginu vegna stóriðjuframkvæmdanna. Fasteignasali á Egilsstöðum talaði um að svona stórt fyrirtæki eins og Alcoa í Reyðarfirði hefði mikil ruðninsáhrif í atvinnulífinu og mörg smærri fyrirtæki hefðu þurft að hætta. Ég botnaði ekkert í þessum manni og vissi hreinlega ekki hvaða fyrirtæki hann var að tala um.
Í nýútkominni skýrslu um efnahags og samfélagsleg áhrif álversins í Reyðarfirði, er farið nákvæmlega í saumana á því hvort einhver ruðningsáhrif hafi átt sér stað. Niðurstaðan var skýr: Engin merki voru um slíkt og þau fyrirtæki sem lagt hafa upp laupana eða flutt á brott frá því álverið tók til starfa, hefðu að öllum líkindum gert það hvort eð er.
Hjörleifur Guttormsson kærði umhverfismat vegna álvers Alcoa og sagði að svona þröngur og mjór fjörður með háum fjallgörðum, þyldi ekki svona mengunarvald. Veðurfar hafði þá verið vaktað á völdum stöðum í firðinum, árum saman m.t.t. hugsanlegrar stóriðju. Allar niðurstöður bentu til að loftskipti í firðinum væru langt yfir laágmarkskröfum og væntingum. Enn er svæðið vaktað með t.t. mengunar og allar mælingar sýna að ekkert er að óttast, enda mengunarvarnarbúnaður álversins sá fullkomnasti og tæknivæddasti í heimi.
Hvar eru þeir nú, sem fullyrt hafa að áhrif álversins í Reyðarfirði yrði lítil sem engin?
![]() |
Vantar fólk í vinnu fyrir austan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: stóriðja og virkjanir | 20.11.2010 (breytt kl. 19:22) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.5.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 946948
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Trump er að landa allan heiminn í tolla- og friðarsamningum
- Hagfræði stjórnmálanna
- Smellibeitufréttir. 99% af eigum Bill Gates fara í Gates Foundation. Ekki er allt sem sýnist með góðmennskuna, að gefa eigin fyrirtæki næstum aleiguna.
- Á bólakafi í Kófinu
- Fals
- Ekki verður aftur snúið
- Svöðusár í boði Viðreisnar
- Verndari öfganna.
- Nýjum tilfellum krabbameins fjölgar um allt að 40%
- Kann hann ekki að reikna?
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Innlent
- Sérstaklega skaðlegt fyrir börn
- Veiðigjaldafrumvarpi vísað til atvinnuveganefndar
- Var á vinnustofu: Við erum í ríkisstjórn. Hvað nú?
- Staðsetning Daða rædd við upphaf þingfundar
- Grímur vék af fundinum
- Höfðu ekki gilt starfsleyfi
- Hyggjast lækka fasteignagjöld á næsta ári
- Dómsmálaráðherra ekki kallaður á opinn fund
- Innsigla heilsulind í Mjóddinni
- Bók mánaðarins: Kúbudeilan 1962
Erlent
- Selenskí vill hafa Trump viðstaddan
- Hamas lætur bandarískan gísl lausan
- Við stöðvuðum kjarnorkuátök
- Kartöflumaðurinn dæmdur í fangelsi
- 22 látnir eftir loftárás á skóla
- Trump íhugar að vera viðstaddur fundinn
- Trump hyggst lækka lyfjakostnað um 59 prósent
- Tollahótanir skyggja á kvikmyndahátíðina í Cannes
- Fyrsta friðsama nóttin í tæpa viku
- Mál Íslendinganna ekki á borði borgaraþjónustunnar
Fólk
- Réttarhöld hefjast yfir Sean Diddy Combs
- Laufey á heiðurslista Gold House
- Biður mömmu sína um styrk fyrir flutninginn
- Fagnar fyrsta mæðradeginum sem þriggja barna móðir
- Við fórum inn í þetta blindandi
- Lofsyngur Hitler í nýju lagi
- Axel O fer alla leið í kántrítónlistinni
- Framtíðarborgir úr hrauni
- Ólífa verður að rottu
- Trúa því að VÆB muni sigra
Athugasemdir
Ég hef aldrei gagnrýnt fólk fyrir að vera þeirrar skoðunar að of miklu hafi verið fórnað við Kárahnjúka...hahahaaahah hahaaahah haha... þú ert ekki bara öfgamaður heldur fyrirtaks grínisti...hahahahaaahahaaaahahahaaaaa
HStef (IP-tala skráð) 23.11.2010 kl. 14:08
Þetta svar þitt Hjalti, sýnir að þú hefur aldrei skilið það sem ég er að segja.
Gunnar Th. Gunnarsson, 23.11.2010 kl. 17:58
Ég hef aldrei gagnrýnt fólk fyrir smekk sinn... um hann verður ekki deilt. Ég hef hins vegargagnrýnt anstæðinga virkjanaframkvædanna fyrir þau rök sem þeir hafa slengt fram.
-
Ég get talið upp vel á annan tug fullyrðinga, sem meira að segja "virt" náttúruverndarsamtök hafa látið frá sér fara, sem eru algjörlega úr lausu lofti gripin og til þess fallin að afvegaleiða vitræna umræðu um náttúruvernd.
-
Nokkrar helstu málpípur náttúruverndarsamtaka á Íslandi, hafa því miður komið óorði á hugtakið "náttúruvernd". Það er mjög sorglegt.
Gunnar Th. Gunnarsson, 23.11.2010 kl. 18:36
Ég er auðvitað að tala um fullyrðingar varðandi áhrif virkjunarinnar og álversins.... bæði hin jákvæðu áhrif, sem og hin neikvæðu.
Það er annaðhvort margfaldað með 10 eða deilt í með 10, allt eftir því hvaða útkomu er óskað.
Gunnar Th. Gunnarsson, 23.11.2010 kl. 18:40
Bla,bla,bla, alltaf sama tuggan...bla,bla,bla, ég hef rétt fyrir mér, bla,bla,bla...svífðu bara áfram á bleika álskýinu þínu, ég læt mosaskýið mitt duga áfram, vonandi batnar þér einhverntímann !
HStef (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 12:05
Hvílík rökfimi!
Gunnar Th. Gunnarsson, 24.11.2010 kl. 20:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.