Góður tímapunktur

Þessi framkvæmd verður seint sökuð um að valda þenslu í þjóðfélaginu, eins og ástandið er í dag. Hún er kærkomið tækifæri fyrir vinnufúsar hendur, hvaðan af landinu sem er. Nóg er húsnæðið hér. Woundering

kirkjan

Hér er kirkjan á Reyðarfirði, einn hrímkaldan morgun.


mbl.is Ný kersmiðja við Reyðarfjörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Þetta verða líklega um 30 störf.

Offari, 3.11.2010 kl. 17:26

2 Smámynd: Offari

Ég las ekki fréttina heldur tók það sem ég hafði heyrt.  70 sturf er mun betra.

Offari, 3.11.2010 kl. 17:30

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

"Nóg er húsnæðið hér." Það er sárbitur sannleikur og beisk saga á bak við þessa kaldhæðni þína Gunnar minn. En því er ekki að leyna að þetta hljóta að teljast góð og mikil tíðindi. Það er fullkomin ástæða til að fagna því að við verðum ekki lengur bara í þriðja heims hluverkinu hjá Alcoa - Fjarðaáli.

Ég meinti auðvitað Rio Tinto.

Það væri fróðlegt að taka saman hvaða þjóðir hafa kosið að gera þessa heiðursmenn að vinum sínum.

Árni Gunnarsson, 3.11.2010 kl. 18:24

4 Smámynd: Vendetta

Liðleskjunum í ríkisstjórninni hlýtur að svíða það, að þeim var ekki boðið í athöfnina.

Vendetta, 3.11.2010 kl. 18:46

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já Vandetta, mér fannst þá dálítið skondið

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.11.2010 kl. 22:01

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Árni, þær eru ansi margar og örugglega meirihluti 50 ríkustu þjóðanna.

-

Þetta "húsnæðisfyllerí" var á nokkrum stöðum á landinu, þegar lánsfé þótti ódýrt og landinn tók lán, sem enginn væri morgundagurinn. Nú bitnar þetta á þjóðinni allri en ekki t.d. á Reyðfirðingum sérstaklega. Sveitarsjóður hefur fengið sín gjöld að mestu, en Íbúðalánasjóður situr uppi með eignirnar og þarf að borga af þeim fasteignagjöld og slíkt.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.11.2010 kl. 01:32

7 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Húsnæðisfylleríið og lánastefna bankana lagði miklu miklu þyngri lóð á vogarskálar hrunsins en nokkur önnur "framkvæmd" hér innanlands.

Á sama tíma og reystur var stór gjaldeyrisskapandi vinnustaður og virkjun hér fyrir austan fyrir um 300 milljarða þá voru lánaðir litlir 1.600 milljarðar í atvinnu og íbúðahúsnæði á suðvestur horninu......

Tölurnar eru birtar með fyrir vara um misminni og villur, ég er ekki óskeikull frekar en aðrir.....

Eiður Ragnarsson, 4.11.2010 kl. 15:33

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég man þetta líka, Eiður, þetta er nærri lagi, mig minnir 1.400 miljarðar. Hluti þess fjár fór einnig í "venjulega" neyslu  og það fé og sú eyðsla var þensluaukandi, án fjárfestingar, án þess að nokkuð stæði eftir nema timburmenn.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.11.2010 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband