Er ekki hægt að finna eitthvað annað?

funny_energy_saving_dog_sticker-p217964281890281495tdcj_525Þetta er náttúrulega síðasta sort!... að ætla sér að bara rífa orkuna úr iðrum jarðar og selja hana!!

Er maðurinn ekki heilbrigður á geði? Veit hann ekki hverjir ráða Íslandi í dag? FootinMouth


mbl.is Horfið til framtíðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Deja Vu? 

"Í framtíðinni hefðu Íslendingar alla möguleika á að eiga og reka jarðvarmafyrirtæki um allan heim."

Porter hefur trúlega ekki hvatt til þess á sínum tíma að Íslendingar eignuðust fjármálastofnanir um allan heim. En við fyrstu sýn er þetta svolítið geggjuð hugmynd.

Flosi Kristjánsson, 1.11.2010 kl. 15:02

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Maðurinn er einmitt að tala um eitthvað annað en það að selja á hálfvirði orku til álvera.

Ómar Ragnarsson, 1.11.2010 kl. 15:08

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

En fyrst þarf að afla orkunnar, Ómar, en á það viltu helst ekki heyra minnst.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.11.2010 kl. 15:34

4 Smámynd: Tryggvi Helgason

".....Íslendingar alla möguleika á að eiga og reka jarðvarmafyrirtæki um allan heim."

Þarna er enn einn rugludallurinn á ferðinni. Einhver kolruglaður prófessor að blaðra um að Íslendingar geti átt og rekið fyrirtæki út um allan heim, - en á sama tíma geta Íslendingar ekki rekið eitt lítið fyrirtæki á Flateyri, og eru að leggja lítinn útgerðarstað í auðn, með dýrkun ríkisstjórnarinnar á; - "fiskileysisguðinum".

Hvað verður næst ??? "Jarðvarmaguðinn" ???

Tryggvi Helgason, 1.11.2010 kl. 15:38

5 Smámynd: Helgi Már Bjarnason

Reynið nú að vera svolítið upplýstir áður en þið byrjið að blammera með svona "illa vinstri grænu" neikvæðnishjali.   Glöggt er gests augað sagði einhver ekki satt.  Og for the record þá er Porter ekki bar einhver kolruglaður prófessur heldur einn virtasti stefnumótunar og markaðsfræðingur sem upp er.  Allir sem hafa farið í eitthvað hagfræði eða viðskiptanám hafa lesið bækurnar hans spjaldana á milli.

Þarna er verið að tala um að skapa okkur sérstöðu í heimi þjóðana, þ.e. að vera kyndilberar ákveðinnar sérþekkingar í vísindum og hugviti.  Flytja út hugvit byggt á þessari reynslu okkar....líklega einn vitrænasti og hagvænasti vaxtabroddur sem völ á fyrir okkur í dag.

Maður verður stundum svolítið pirraður þegar maður þarf að hlusta á svona hjal eins og í ykkur sem hér hafið talað (nema Ómar, hann skilur málið).  Ég vill helst búa hérna áfram sko...og koma okkur uppur volæðinu og aumingjaskapnum sem núna grasserar.

Helgi Már Bjarnason, 1.11.2010 kl. 20:32

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir innleggið, Helgi. Nokkuð til í þessu hjá þér.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.11.2010 kl. 21:18

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

... en ég tel nokkurn mun á gagnrýni og niðurrifsgagnrýni.

Margir töluðu um á sínum tíma, að Krafla væri tóm vitleysa og að áhugasamir þingmenn Sjálfstæðisflokksins með Júlíus Sólnes í fararbroddi, væru að reisa sér persónulegan minnisvarða um sjálfa sig. Í dag eru allir sammála um það, að þó Kröfluvirkjun hefði verið dýr og ýmislegt hafi mislukkast við þá virkjun, m.a. vegna náttúruhamfara, að þá sé hún hornsteinn þeirrar þekkingar og þess mannauðs sem við eigum í dag á sviði jarðvarmanýtingar.

-

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.11.2010 kl. 21:26

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

... og það mætti ætla að Ómar Ragnarsson haldi að ég hafi misskilið prófessorinn eitthvað... en mér sýnist að Ómar sjálfur, misskilji málið og þ.a.l. þú líka, Helgi

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.11.2010 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband