Klókur sá gamli

Kallinn er eldri en tvævetur í boltanum og hann þekkir Rooney. Þegar Rooney kom til Man Utd frá Everton, var hann að mig minnir 17 eða 18 ára gamall. Þá þegar hafði hann sýnt af sér hegðun á vellinum sem olli honum vandræðum.

fóstrarUndir föðurlegri handleiðslu Fergusons og með aðstoð bestu sérfræðinga, tókst að hemja og aga strákinn. Það var ekki sjálfgefið að það tækist og sennilega hefði það hvergi tekist nema hjá Ferguson. Sá gamli hefur höfðað til þessara þátta í spjalli sínu við Rooney. "Hvað yrði um Wayne Rooney, fjarri heimalandinu, þegar verulega á móti blési?"

Ef Rooney færi til stórliðs á borð við Barcelona, Real Madrid eða AC Milan, fengi hann lítinn tíma til að sanna sig. Þú er ekki keyptur fyrir stórfé til þessara liða til þess að aðlagast í rólegheitum. Það er ætlast til að þú sýnir strax eitthvað fyrir aurinn.

Fóstrarnir Ferguson og Rooney eru góðir saman. Ég held að strákurinn hafi áttað sig á því.


mbl.is Ferguson: Mun biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Jónsson

Sir Alex veit hvað hann syngur, sendir fréttasnápum fingurinn með þessari brellu sinni með Rooney.

Björn Jónsson, 22.10.2010 kl. 19:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband