Eru ekki nóg vandræði heimafyrir?

priest-love-th-wHvað eru Guðsmennirnir að skifta sér af pólitík? Ég hélt að það væri nóg að gera hjá þeim við að lofta út ólyktinni á Biskupsstofu Woundering

Ég er á móti því að Guðsmenn á launum hjá ríkinu, séu að skifta sér af pólitík og dægurþrasi. Ég hefði haldi að þeir þyrftu á öllu sínu að halda til að sundrungin innan söfnuða þeirra héldist í lágmarki.


mbl.is Prestar furða sig á niðurstöðu um landsdóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Hjartanlega sammála þér -

Því miður virðist almenningur á þeirri skoðun að það sem kemur frá prestum sé marktækara en það sem kemur frá öðru fólki -

það er mikill misskilningur - en hroki þeirra margra er í samræmi við þessa bábilju fólks.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 4.10.2010 kl. 06:26

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hvaða pólitík eruð þið að meina? Eru leikreglur samfélagsins ekki pólitík? Mega þá prestar ekki tala nema óskiljanlegt rugl um hina órannsakanlegu vegi Guðs?

Ég er smeykur um að Jesús Kristur hefði fengið  orð í eyra ef hann hefði verið uppi á okkar dögum. Ekki lagði hann sig nú fram við að varast það að móðga einhvern.

Ég er nefnilega ekki viss um að hann hefði tekið undir þau orð fjármálaráðherrans í Fréttablaðinu í dag sem skilja má svo að það sé mikilvægara að bjarga bönkum en heimilum fólks.

Reyndar treysti ég mér nú ekki svo mjög til að tala fyrir hönd umrædds. 

Árni Gunnarsson, 4.10.2010 kl. 08:42

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Jesú var ekki á launum sem embættismaður hjá ríkinu

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.10.2010 kl. 09:16

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hárrétt Gunnar. Það er mikið vafamál í mínum huga hvort kirkjan eigi að vera ríkisstyrkt stofnun með starfsmenn á launum hjá þjóðinni.

Mér er líka til efs að Rúv. eigi að halda áfram að vera sjálftökudeild á fjárlögum og í skjóli þess beita aflsmunum í samkeppni við einkarekna ljósvakamiðla.

Ég er svo gamaldags að vilja eiga aðgang að gömlu Gufunni en finnst að það ætti að nægja. 

Árni Gunnarsson, 4.10.2010 kl. 13:16

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þar erum við sammála, Árni. Gufan nægir.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.10.2010 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband