E.t.v. gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn?

Það sem Þorgerður segir er rökfast og hárrétt.

Það er vitað að ákveðinn hluti almennings, nær eingöngu vinstrimenn, vill að pólitísk hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins verði gerð að sakamáli og vilja því pólitísk réttarhöld yfir formanni flokksins. 

Það væri auðvitað ágæt leið fyrir Geir og flokkinn að fá að taka til varna fyrir dómi og hreinsa sig af þessum kærum í eitt skipti fyrir öll, ef ekki væri fyrir það að 8 af 15 dómurum í landsdómi, eru kosnir pólitískri kosningu á Alþingi.

Ekki er nóg með það að þeir sem vilja kæra eru líka dómarar og hafa meirihluta.

Hannes Hólmsteinn skrifar alltaf góða pistla og í pistlinum: Ég var sjónarvottur sem hann skrifaði áður en atkvæðagreiðslan á Alþingi fór fram:

 "Ég hef áður látið í ljós þá skoðun, að mér finnist fráleitt að setja þau Geir H. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur á sakamannabekk, eins og meiri hluti þingmannanefndar undir forystu Atla Gíslasonar leggur til. Það er langur vegur frá afglöpum að afbrotum. Þau Geir og Ingibjörg Sólrún eru sek um afglöp, en ekki afbrot. Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir játað, að tilgangurinn með þessum ákærum og hugsanlegum réttarhöldum er stjórnmálalegur. Hún var spurð, hvort hún teldi ákærur róa almenning. Hún svaraði: „Ég vona það. Til þess var þetta sett á laggirnar.“

Þessi orð Jóhönnu eru athyglisverð. Í öðrum pistli segir Hannes:

"Ingibjörg Sólrún er enginn glæpamaður, og tilraun Samfylkingarinnar til að breyta Íslandi í leikvang að rómverskum sið er í senn sorgleg og hlægileg, en aðallega fyrirlitleg. Við megum ekki gleyma því, að það fólk, sem nú á að fórna, er fólk með tilfinningar, vit og vilja, fjölskyldur og vini. Þótt ég hafi aldrei verið samherji Ingibjargar Sólrúnar, finn ég til með henni í þessum raunum. Ömurlegt hlýtur að vera fyrir hana að horfa upp á hvern hugleysingjann af öðrum svíkja sig, — sama fólkið og klappaði hvað ákafast fyrir henni á Hótel Íslandi, þegar hún gekk hnakkakert í salinn eftir að hafa sigrað í borgarstjórnarkosningunum 1994. Ingibjörg Sólrún hefði mátt vera vandari að vinum, eins og sum okkar hinna voru, sem betur fer."


mbl.is Þorgerður Katrín: Pólitísk réttarhöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gunnar nú verd ég ad vera ósammála thér, THAD VARD HRUN svo einhver eda einhverjir hljóta ad bera ábyrgd. Ég sem FYRRUM sjálfst-madur er STÓR-hneyksladur á thessu tali (afglöp) THEGAR THÚSUNDIR HEIMILA FLOSTNA UPP og eiga eftir ad verda FLEIRI. Bessunin hún th.katrín á ad snúa sér ad ödru eins og nánast ALLIR THINGMENN sjalla sem voru fyrir HRUN. Kv. G

gulli-spanjoli (IP-tala skráð) 29.9.2010 kl. 12:46

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta fólk, og þ.m.t. Þorgerður Katrín og fl. eiga að bera pólitíska ábyrgð.

En þetta er ekki sakamál.

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.9.2010 kl. 13:00

3 identicon

er til pólitísk ÁBYRGD á Íslandi?????? held ekki, menn hafa ekki einusinni getad HVÍSLAD         afsakid

gulli-spanjoli (IP-tala skráð) 29.9.2010 kl. 15:47

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Pólitíska refsingin er í höndum kjósenda, ekki í höndum pólitískra andstæðinga og hatursmanna.

V-grænir voru reiðir, mjög reiðir í 18 ár.

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.9.2010 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband