Fyrir Bigga og Hrafnkel

Birgir Ævarsson, vinur minn til 30 ára, var gallharður Bliki. Hann lést úr krabbameini þann 9. desember sl., fimmtugur að aldri.

Þeir voru ófáir leikirnir sem við Biggi fórum á saman til að sjá Val og Breiðablik spila, en ég hef verið Valsari frá blautu barnsbeini. Biggi fékk ekki að upplifa Breiðablik sem Íslandsmeistara... ekki í þessu lífi.

Daginn sem Birgir var jarðaður, lést Hrafkell Kristjánsson, íþróttafréttamaður eftir bílslys, en hann var eins og margir vita, bróðir Ólafs, þjálfara Breiðabliks. Ólafur sagði í viðtali eftir að Blikarnir voru orðnir meistarar að þrátt fyrir hið mikla áfall við fráfall bróður síns, hafi hann þó einnig getað sótt styrk frá minningu hans í hinni miklu baráttu undanfarinna vikna.

Ég óska öllum Blikum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn. Besta og skemmtilegasta liðið stóð uppi sem sigurvegari.

sléttuá- biggi

Hér er Biggi með 7 punda lax sem hann fékk í Sléttuá í Reyðarfirði, í ágúst 2005. Við fengum auk þess rúmlega 50 sjóbleikjur í ánni þennan fallega dag. Ég sakna Bigga.


mbl.is Breiðablik er Íslandsmeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð færsla Gunni, stórglæsilegt hjá Blikunum að taka þetta með sitt unga og skemmtilega lið. Kallinn hefði sannarlega verið sáttur með þetta.

Bjarki Einar (IP-tala skráð) 26.9.2010 kl. 23:24

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, ég hef mikið hugsað til hans undanfarið

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.9.2010 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband