Á misskilningi byggt

Það virðist vera algengur misskilningur að ríkisvaldið hafi borið ábyrgð á bankahruninu og að hægt hefði verið að stöðva útþenslu bankanna með einu pennastriki.

Auðvitað var málið ekki svo einfalt því fara þurfti að lögum. Stjörnvöld grípa ekki inn í rekstur einkafyrirtækja, nema þau brjóti lög.

Svo tala menn um að breyta hefði átt lögunum og það er mikið til í því, en það var ekki einfalt heldur. Það verður að virða alþjóðalög og reglur um þessi mál.

Hugmyndir VG eru um banka og hagkerfi eru gamaldags og hafa raunar aldrei verið raunhæfar. Ef þeir fengju að ráða einir, þyrfti að stofna sérstakt ráðuneyti sem afgreiddi viðskipta og einkaréttarkærur á hendur ríkinu.


mbl.is Tel að þessi tilraun hafi mistekist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband