Til hvers voru spárnar?

Það er með ólíkindum að ekki hafi verið samræmt eftirlit með byggingagleði verktaka, á svona fámennu svæði og á Mið-Austurlandi. Til hvers voru spárnar og fyrir hverja voru þær gerðar? Greinilega ekki byggingaverktakana. Errm

Þess má geta að eini og sami verktakinn, Byggingaverktaki Austurlands, (BVA),  byggði megnið af þeim íbúðum sem Íbúðalánasjóður situr nú uppi með, eða alls 182 íbúðir. 101 á Reyðarfirði og 81 á Egilsstöðum. BVA varð gjaldþrota.

bva1 Á Egilsstöðum byggðu þeir þrjár sjö hæða blokkir. Mikil bjartsýni ríkti um að þessar íbúðir fylltust fljótlega allar af fólki.

 

 

bva2

Á sama tíma var BVA á fullu á Reyðarfirði og þar urðu blokkirnar fjórar, þar af ein sérhönnuð fyrir aldraða og öryrkja. Lang besta nýtingin hefur orðið á þeirri blokk, eða um 80%.

Skipulagsyfirvöld í Fjarðabyggð dönsuðu með í þessum dansi.... sem enginn væri morgundagurinn.             Á Reyðarfirði var byggðinni dritað niður hingað og þangað og þar eru nú hálf tóm hverfi og rándýrt fyrir sveitarsjóð að hafa lagst í gatna og lagnagerð út um holt og hæðir. 

Nafngiftir og númarakerfi gatnanna er svo sér kapitali útaf fyrir sig. Maður veltir því fyrir sér í hverju veitingar hafi verið fólgnar, á skipulags og nafnanefndarfundum sveitarfélagsins Errm


mbl.is Húsnæði langt umfram þörf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

og svo eiga Reyðfirðingar menn eins Ásmund Ásmundsson

Einar Bragi Bragason., 12.9.2010 kl. 20:54

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, og marga fleiri.... en hvernig tengist hann þessu umfjöllunarefni, að öðru leyti en því að hann vinnur á fasteignasölu?

Gunnar Th. Gunnarsson, 12.9.2010 kl. 21:22

3 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

nú hann heldur að Reyðarfjörður sé höfuðborg Austurlands

Einar Bragi Bragason., 12.9.2010 kl. 21:33

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

.... er það einhver glæpur ?

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.9.2010 kl. 05:10

5 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

hann er glæpamaður já

Einar Bragi Bragason., 13.9.2010 kl. 12:59

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Er það ekki há- alvarlegt þegar laganna vörður lætur svona staðhæfingu á prent?

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.9.2010 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband