Samsæriskenning

Ég talaði við pólska konu í gær, sem búsett er hér eystra og hún sagði að margir Pólverjar haldi því fram að flugvélinni hafi verið grandað. Að um einhverskonar hryðjuverk sé að ræða, því um borð í vélinni var rjóminn af pólskum ráðamönnum.

Það er reyndar með ólíkindum að svo margir háttsettir menn séu saman komnir í einni og sömu vélinni. Mér skilst að slíkt sé ekki venja hjá nokkru ríki, ekki einu sinni á Íslandi. Reglur kveða á um hér að ef mikið stendur til, hvort sem það er innanlands eða utan, þá er ráðamönnum dreift á fleiri flugvélar af öryggisástæðum.

Ps. Athyglisverð samsæriskenning HÉR


mbl.is Flugmenn hunsuðu fyrirmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gættu nú að þér, við vorum rétt í þessu kölluð geðsjúk fyrir að endursegja það sama, en þó frá annarri uppsprettu.

Flugslys pólsku vélarinnar hryðjuverk?

Gullvagninn (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 11:11

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta, þetta er athyglisvert

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.4.2010 kl. 11:13

3 identicon

Gullvagninn, ég kallaði ykkur hvergi geðsjúk. Það er lygi í þér. Hinsvegar er þetta tóm della þessar samsæriskenningar um þetta flugslys og ekkert annað. Hinsvegar hefur það sannast að samsæriskenningasmiðum er sama um sannleikan, eins og dæmin sanna. Hérna er hægt að lesa færsluna hjá mér um þetta bull í samsæriskenningasmiðum á internetinu um þetta hörmulega flugslys.

Jón Frímann (IP-tala skráð) 11.4.2010 kl. 11:18

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Jón Frímann, ég hef séð þig nokkrum sinnum gera athugasemdir hér á moggablogginu, til varnar ESB, ef þér finnst eitthvað á bandalagið hallað.

-

Er það ESB- tengingin sem gerir þig svona órólegan?

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.4.2010 kl. 11:42

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hafi það ekki verið venja hjá Pólverjum að ráðamenn ferðuðust margir saman, hvernig komu hryðjuverkamennirnir þá öllum í sömu flugvélina?

Er ekki rétt að anda með nefinu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.4.2010 kl. 12:05

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Tja, ef það er ekki venja hjá Pólverjum að dreifa ráðamönnum á fleiri vélar, þá er sjálfsagt ekki mikið mál að gera einhvern óskunda við þessa einu vél, hvort sem það er flugmaðurinn sjálfur (sjálfsmorðshryðjuverk) eða annað.

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.4.2010 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband