Að frátöldum morðunum.....

Marion-Barry-300x251Einhverjir muna e.t.v. eftir Demókratanum Marion Barry , sem var borgarstjóri Washingtonborgar 1979-1991. Hann var gripinn af FBI við neyslu á kókaíni og var dæmdur í 6 mánaða fangelsi. Þrátt fyrir það var hann endurkjörinn í embættið að afplánun lokinni og sat sitt fjórða kjörtímabil 1995-1999. 

Barry hélt því fram að hann hefði verið leiddur í gildru af pólitískum andstæðingum sínum, þegar hann var gripinn (og kvikmyndaður) við að reykja "crack-kókaín" í félagskap "ókunnugrar" konu. Barry mótmælti við handtökuna og sagði: "Goddamn setup.... I´ll be goddamn... bitch set me up." 

Margar heimskulegar tilvitnanir eru eignaðar Marion Barry en hann hafði orð á sér fyrir að reiða ekki vitið í þverpokum. Þegar fjölmiðlar gerðu að umtalsefni hina háu glæpa og morðtíðni í höfuðborg Bandaríkjanna, þá á Barry að hafa sagt:

"If you take out the killings, Washington actually has a very low crime rate."

Eitt sinn sást til hans á stripp-búllu um miðja nótt, en hann var ekki í vandræðum með að útskýra það fyrir fjölmiðlum:

 "First, it was not a strip bar, it was an erotic club. And second, what can I say? I´m a night owl."

Og að lokum er hér ein tilvitnun í viðbót í þessa mannvitsbrekku:

"I am a great mayor; I am an upstanding Christian man; I am an intelligent man; I am a deeply educated man; I am a humble man".

 


mbl.is Þrír létust í skotárás í Washington
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband